Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Samúel Karl Ólason skrifar 17. mars 2026 14:47 Munurinn á hefðbundinni grafík og því þegar kveikt er á DLSS 5. Mörgum virðist ekki lítast vel á þessa þróun. Nvidia Forsvarsmenn fyrirtækisins Nvidia kynntu í gær nýjung hvað varðar grafík fyrir tölvuleiki. Hún kallast DLSS 5 og er ætlað að bæta lýsingu í tölvuleikjum og gera grafík þeirra raunverulegri. Hún þykir þó strax töluvert umdeild.
Jensen Huang, forstjóri Nvidia, sagði að með stillingunni væri hægt að nýta gervigreindartækni fyrirtækisins til að gera tölvuleiki raunverulegri í útliti með minni reiknigetu en áður. Um sé að ræða „GPT vendipunkt“ fyrir tölvuleikjagrafík. Í tilkynningu fyrirtækisins segir að um einhverja mestu framþróun í grafík tölvuleikja sé að ræða frá þróun geislarakningar (e. ray tracing) árið 2018. Tæknin bjóði framleiðendum tölvuleikja upp á að gera mjög raunverulega leiki sem hafi áður eingöngu verið mögulegt í Hollywood. DLSS sameinar hefðbundna grafíktækni við gervigreind til að bæta lýsingu og útlit hluta í leikjum í rauntíma. Margir hafa líkt DLSS 5-stillingunni við að bæta AI-filter við útlit tölvuleikja og kvarta margir í athugasemdum við myndbönd Nvidia yfir því að stillingin breyti upprunalegri hönnun tölvuleikja of mikið, miðað við þau sýnidæmi sem Nvidia hefur birt. Margir hafa þar að auki sagt að leikirnir virðist of gervigreindar-legir með DLSS 5. Nvidia hefur um árabil framleitt tölvuflögur fyrir leikjaspilun en sá hluti fyrirtækisins hefur dregist saman, hlutfallslega og þá sérstaklega miðað við þróun og framleiðslu fyrirtækisins á tölvuflögum fyrir gervigreind. DLSS 5 verður fyrst aðgengilegt í haust. Meðal fyrstu leikja sem munu hljóta DLSS 5 stuðning eru Resident Evil Requiem, The Elder Scrolls IV: Oblivion Remastered, EA SPORTS FC, Starfield, Hogwarts Legacy, AION 2, Assassin‘s Creed Shadows, Black State, CINDER CITY, Delta Force, Justice, NARAKA: BLADEPOINT, NTE: Neverness to Everness, Phantom Blade Zero, Sea of Remnants og Where Winds Meet.
Leikjavísir Gervigreind Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Fleiri fréttir Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira