Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Eiður Þór Árnason skrifar 16. mars 2026 19:21 Snædís Xyza Mae Jónsdóttir og Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttur voru fulltrúar Íslands þetta árið. Íslenska teymið Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari íslenska kokkalandsliðsins, hefur tryggt sér sæti í aðalkeppni Bocuse D’Or. Hún keppti í dag í stærstu kokkakeppni Evrópu og er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd. Þema hennar í keppninni var fjallkonan og íslenski þjóðbúningurinn.
Snædís keppti í Evrópukeppni Bocuse D’Or í dag ásamt Marlís Jónu Þórunni Karlsdóttur, aðstoðarkonu sinni, og lentu þær í tíunda sæti. Aðalkeppnin fer fram í Lyon í Frakklandi í janúar á næsta ári. Snædís og Marlís voru að frá því snemma í morgun og var niðurstaðan ljós á sjötta tímanum. Danir lentu í fyrsta sæti keppninnar í dag, Norðmenn í öðru og Ítalir í því þriðja. Tíu efstu löndin komust inn í aðalkeppni Bocuse D’Or. Rætt var við Snædísi á Vísi um helgina um keppnina en hún sagði þátttöku langþráðan draum. Þar sagði hún þemað allsráðandi í seinni disknum þar sem hún notar silfurvírvirki sem notað er í íslenskum þjóðbúningi kvenna. Silfrið sem notað var til að skreyta matinn var hannað af Þórdísi í Sign í samvinnu við liðið. Rétturinn She wears the sea in silver.Íslenska teymið Óður til þjóðbúningsins Umfangsmesti réttur teymisins var nefndur She wears the sea in silver eða Hún klæðist hafinu í silfri. Honum er lýst á eftirfarandi hátt en öllum keppendum var gert að nota franskan ætiþistil í réttum sínum: „Óður til okkar fallega þjóðbúnings, sem er þekktur fyrir sitt íburðarmikla silfurskraut. Pönnusteiktur urriði fylltur með humar- og urriðafarsi, með tómötum og fínlegu kryddjurtalagi. Borið fram með ætiþistilsgimsteini fylltum með ætiþistilssultu og krýndur með ube-flögu. Kjúklingabaunapanisse, fyllt með piparrótarskyri, fenniku og grænu epli, toppað með íslensku hnúðkáli og kjúklingabaunum.Klárað með Vin Jaune-sósu úr urriða og ígulkeri.“ Buðu upp á smokkfisksmedalíu Annar hluti íslenska framlagsins í ár var nefnt Þar sem fjöllin mæta sjónum. Rétturinn Þar sem fjöllin mæta sjónum. Íslenska teymið „Gullfalleg nautalund kysst með port víni, noisette og jurtum og fyllt smokkfisks-medalía. Heit leturhumars aioli setur svo punktinn yfir i-ið, en sósan er bætt með íslensku wasabi og skyri.“ Fram kemur í frétt Veitingageirans að keppninni hafi verið skipt upp í tvö verkefni. „Í Miðjarðarhafsverkefninu þurfa keppendur að útbúa fjórtán diska þar sem fjögur hráefni eru í aðalhlutverki. Það eru smokkfiskur, nautalund af Camargue-nauti, hvítlaukur og ólífuolía. Í hinu verkefninu, sem borið er fram á stóru fati, þurfa keppendur að útbúa fjórtán skammta þar sem rauður gurnard-fiskur, litlar fjólubláar ætiþistlar, kjúklingabaunir og ígulker eru lykilhráefni.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Matur Frakkland Kokkalandsliðið Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Snædís stigin á svið í Bocuse d´Or Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari kokkalandsliðsins, stígur á svið klukkan tíu að íslenskum tíma og keppir í stærstu kokkakeppni Evrópu, Bocuse d´Or í Marseilla í Frakklandi. Snædís er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd og er þema hennar í keppninni Fjallkonan. 16. mars 2026 10:07 „Þetta hefur alltaf verið draumurinn“ Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari kokkalandsliðsins, keppir á mánudag í stærstu kokkakeppni Evrópu, Bocuse d´Or í Marseilla í Frakklandi. Snædís er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd og er þema hennar í keppninni Fjallkonan. Með henni fylgir teymi og tonn af tækjum og tólum. 15. mars 2026 12:39 Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Lífið Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Titanic? Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verkefnum? Áskorun Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Fleiri fréttir Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Sjá meira
Snædís stigin á svið í Bocuse d´Or Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari kokkalandsliðsins, stígur á svið klukkan tíu að íslenskum tíma og keppir í stærstu kokkakeppni Evrópu, Bocuse d´Or í Marseilla í Frakklandi. Snædís er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd og er þema hennar í keppninni Fjallkonan. 16. mars 2026 10:07
„Þetta hefur alltaf verið draumurinn“ Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari kokkalandsliðsins, keppir á mánudag í stærstu kokkakeppni Evrópu, Bocuse d´Or í Marseilla í Frakklandi. Snædís er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd og er þema hennar í keppninni Fjallkonan. Með henni fylgir teymi og tonn af tækjum og tólum. 15. mars 2026 12:39