Flestir telja veikindarétt og starfsöryggi ríkari hjá hinu opinbera Lovísa Arnardóttir skrifar 16. mars 2026 10:51 Flestir telja veikindarétt meiri hjá hinum opinbera en í einkageiranum. Vísir/Vilhelm Um 70 prósent telja að veikindaréttur sé meiri í opinbera geiranum og starfsöryggi sömuleiðis. Spurt var í nýrri könnun Maskínu hvort að fólk teldi veikindarétt vera sama í opinbera geiranum og einkageiranum eða meiri í öðrum hvorum?
71 prósent svöruðu því að hann væri meiri í opinbera geiranum, 22 prósent svöruðu að þau teldu að hann væri sami og sjö prósent töldu að hann væri meiri í einkageiranum. Einnig var spurt um starfsöryggi. Þar sögðust 83 prósent telja starfsöryggi meira í opinbera geiranum, tíu prósent töldu það sama í opinbera og einkageiranum og sjö prósent töldu starfsöryggi meira í einkageiranum. Nánar hér á vef Maskínu. Sé litið til ólíkra bakgrunnsbreyta má sjá að fleiri karlar en konur telja veikindarétt meiri hjá hinu opinbera, eða 77,5 prósent karla á móti 63,5 prósent. Einnig er líklegra að þau sem eldri eru telji veikindarétt ríkari hjá hinu opinbera en þau sem yngri eru. Hlutföllin eru nokkuð svipuð eftir búsetu en þó nokkurn mun má sjá eftir því hvaða flokk fólk kýs. Þau sem kjósa Miðflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn eru langlíklegust til að telja að veikindaréttur þeirra sem starfa hjá hinu opinbera sé meiri en í einkageiranum. 82,8 prósent kjósenda Miðflokks telja það og 85,8 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokks. Þá telja 76,3 prósent kjósenda Viðreisnar það líka og 66,5 prósent kjósenda Samfylkingarinnar. 38,3 prósent kjósenda Pírata telja veikindaréttinn ríkari hjá hinu opinbera. Fleiri telja starfsöryggi meira en veikindarétt. Maskína Flestir sammála Þegar kemur að starfsöryggi telja 83,1 prósent að það sé meira hjá hinu opinbera. 87,6 prósent karla segjast telja starfsöryggi meira hjá hinu opinbera og 77,9 prósent kvenna. Niðurstöður eru annars nokkuð svipaðar eftir aldri, búsetu og tekjum. Lítill munur er á stjórnmálaflokkum en þó er mikill meirihluti kjósenda Miðflokks og Sjálfstæðisflokks sem telur starfsöryggi mun meira í opinbera geiranum á meðan meirihluti kjósenda annarra flokka telur það nokkru meira. Samanlagt er hlutfallið nokkuð svipað. Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Könnunin fór fram dagana 25. febrúar til 3. mars 2026 og voru svarendur 1.002 talsins. Svarendur eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar um kyn, aldur, búsetu og menntun þannig að þau endurspegla þjóðina prýðilega. Við vigtun svara getur birst örlítið misræmi í fjöldatölum og hlutföllum sem orsakast af námundun.
Vinnumarkaður Heilbrigðismál Kjaramál Rekstur hins opinbera Skoðanakannanir Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira