Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Kristján Már Unnarsson skrifar 15. mars 2026 07:57 Ómar Benediktsson segir frá frumlegri leið sem Íslandsflug fór til að fá sem besta sætanýtingu í Grænlandsfluginu. Egill Aðalsteinsson Íslensk flugfélög hófu snemma flug til Grænlands. Fyrir 1950 voru bæði Flugfélag Íslands og Loftleiðir farin að sinna þar ýmsum verkefnum. Flugfélag Íslands, síðar Flugleiðir og nú Icelandair, hefur lengst af verið umvifamest íslenskra félaga í Grænlandsflugi.
Framan af var þetta einkum flug fyrir dönsk stjórnvöld og bandaríska herinn en einnig fyrir vísindaleiðangra. Opnun flugvallarins í Kulusuk, sem bandaríski herinn hóf að leggja árið 1956, varð hins vegar grunnurinn að flugi Íslendinga með ferðamenn sem og áætlunarflugi til Grænlands. Flugfélagsmenn riðu á vaðið. Pétur P. Johnson er sérfræðingur um íslensku flugsöguna.Egill Aðalsteinsson „Þeir byrja með túristaflug til Grænlands árið 1958 og það vex og vex. Fyrst til Kulusuk og svo seinna til Narsarsuaq,“ segir flugsögusérfræðingurinn Pétur P. Johnson í Grænlandsþætti Flugþjóðarinnar á Sýn+ Flugáhafnir Flugfélagsins kynntust framandi menningu. Póstflugi var jafnframt sinnt á afskekkta staði þar sem pökkum var kastað út um opnar dyr á flugvélinni. Áhafnarmeðlimir þurftu að passa sig að detta ekki sjálfir út. Helgi Jónsson í viðtali við Ómar Ragnarsson árið 1990 um kaup á Jetstream-flugvélum til Grænlandsflugs.Stöð 2/skjáskot. Fleiri flugrekendur áttu eftir að bætast í Grænlandsflugið, eins og Helgi Jónsson, sem þekktastur var fyrir flugskólann. Árið 1984 hóf hann áætlunarflug til Kulusuk og var um tíma með þrjár nítján sæta Jetstream-skrúfuþotur í nafni Odin Air. Norðlendingar hafa verið öflugir í Grænlandsflugi undanfarna hálfa öld út frá Akureyri. Sigurður Aðalsteinsson, einn af stofnendum Flugfélags Norðurlands, rifjar upp hvernig það kom til. Friðrik Adolfsson segir frá miklum umsvifum Norðlendinga í flugi til Grænlands.Egill Aðalsteinsson Norlandair tók síðar við keflinu. Friðrik Adolfsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og aðaleigandi Norlandair, lýsir miklum umsvifum Norðlendinga í flugi til Grænlands. Burðarþol flugvélanna var oft það takmarkað að sjaldnast var hægt að nýta öll sætin í Grænlandsfluginu. Ráðamenn Íslandsflugs fundu ráð við því þegar þeir hófu flug til Kulusuk á nítján sæta Dornier, eins og Ómar Benediktsson, annar stofnanda Íslandsflugs, lýsir í þessum kafla þáttarins: Þátturinn um Grænlandsflugið er sá sautjándi í þáttaröðinni. Áskrifendur geta séð hann í heild sem og alla þætti Flugþjóðarinnar á streymisveitunni Sýn+.
Flugþjóðin Grænland Fréttir af flugi Reykjavíkurflugvöllur Akureyrarflugvöllur Icelandair Tengdar fréttir Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Íslendingar eiga enn eftir að uppgötva Grænland sem ferðamannaland en yfirgnæfandi meirihluti farþega Icelandair þangað eru útlendingar. 11. september 2025 21:41 Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Prófanir á flugleiðsögutækjum annarra þjóða eru ein sérhæfðasta útrás íslenska fluggeirans. Þannig er flugvél Isavia nýtt í mælingum fyrir Grænlendinga, Færeyinga og Norðmenn og íslenskir flugprófanamenn gegna um þessar mundir lykilhlutverki í úttekt á nýjum flugvöllum Grænlands. 28. september 2025 21:11 Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Íslenskir flugumferðarstjórar á vegum Isavia hafa undanfarinn áratug annast flugumferðarþjónustu fyrir Grænlendinga. Með breytingum á flugvallakerfi landsins eru horfur á að ekki verði lengur þörf fyrir Íslendingana. 21. september 2025 20:40 Segir Grænland mikilvægt fyrir íslenska flugrekendur Verkefni á Grænlandi hafa mikla þýðingu fyrir íslenska flugrekendur, segir flugstjóri hjá Mýflugi. Hann segir magnað að fljúga um stórbrotið landslag Grænlands, jafnt að vetri sem sumri. 27. janúar 2025 21:54 Mest lesið Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Fleiri fréttir Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Sjá meira
Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Íslendingar eiga enn eftir að uppgötva Grænland sem ferðamannaland en yfirgnæfandi meirihluti farþega Icelandair þangað eru útlendingar. 11. september 2025 21:41
Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Prófanir á flugleiðsögutækjum annarra þjóða eru ein sérhæfðasta útrás íslenska fluggeirans. Þannig er flugvél Isavia nýtt í mælingum fyrir Grænlendinga, Færeyinga og Norðmenn og íslenskir flugprófanamenn gegna um þessar mundir lykilhlutverki í úttekt á nýjum flugvöllum Grænlands. 28. september 2025 21:11
Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Íslenskir flugumferðarstjórar á vegum Isavia hafa undanfarinn áratug annast flugumferðarþjónustu fyrir Grænlendinga. Með breytingum á flugvallakerfi landsins eru horfur á að ekki verði lengur þörf fyrir Íslendingana. 21. september 2025 20:40
Segir Grænland mikilvægt fyrir íslenska flugrekendur Verkefni á Grænlandi hafa mikla þýðingu fyrir íslenska flugrekendur, segir flugstjóri hjá Mýflugi. Hann segir magnað að fljúga um stórbrotið landslag Grænlands, jafnt að vetri sem sumri. 27. janúar 2025 21:54