Davíð kvaddur Ámundi Loftsson skrifar 13. mars 2026 11:17 Það var í byrjun marsmánaðar 1991 að ég hringdi í Davíð Oddsson heim til hans og viðraði við hann þá hugmynd að ég liti til hans á borgarstjóraskrifstofuna, ég væri með dálítið sem mig langað að sýna honum. Hann hafði þá lýst yfir formannsframboði í Sjálfstæðisflokknum og því ljóst að hann var á leið í landsmálapólitíkina, ef hann næði kjöri á væntanlegum landsfundi sem haldinn yrði þá innan fárra daga. Davíð tók mér vel og daginn eftir fór ég ásamt vini mínum Sigurði Hlöðverssyni til fundar við hann á skrifstofu hans við Pósthússtræti. Hafði ég þá meðferðis möppu sem innihélt ritgerð sem Sigurður Líndal lagaprófessor hafði skrifað um hvernig stjórnkerfi landbúnaðarins, sem þá hafði nýlega tekið miklum breytingum, færi í bága við stjórnarskrána. Ritgerðin var í prentun þegar þarna var komið. Davíð vissi vart hvaðan á hann stóð veðrið þegar hann blaðaði í möppunni og þótti efnið áhugavert. Ræddum við þetta fram og aftur og vorum sammála um að sterk landsbyggð og bændur í sveitum hefðu mikið vægi í stjórnmálum. Undir lok samtals okkar hafði ég á orði hve bændur væru í raun ráðandi á landsfundum flokksins. Sjálfstæðisflokkurinn væri í raun fjöldi smárra félaga inn um dali og út um nes út um allt land sem öll ættu fulltrúa á landsfundum og það væru að stórum hluta bændur. - Segðu Davíð eitthvað við þá sem þú heldur að hann vilji heyra og þá mun vel fara. Það varð andartaks þögn áður en við kvöddumst. Við Davíð héldum eftir þetta góðum kunningsskap. Einu sinni sá ég til ferða hans á gangi ásamt öðru fólki framhjá Bónus á Akureyri og kallaði þá til hans -Þetta átti þá fyrir okkur að liggja, að hittast í Bónus. „ Já svona eru örlögin“ kallaði hann á móti. Við hittumst í nokkur skipti eftir þetta og þá var gjarnan stutt í spaugið. Davíð skilur eftir sig mikið og varanlegt tómarúm. Andsæðingar hans í pólitík koma nú hver af öðrum fram og bera honum góða sögu. Davíð Oddsson er tvímælalaust eftirminnilegasti stjórnmálaforingi íslenskrar stjórnmálasögu. Við fráfall hans votta ég fjölskyldu hans og vinum samúð mína. Ámundi Loftsson fyrrum sjómaður og bóndi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar