Reikniskekkja Viðreisnar í Kópavogi Orri Vignir Hlöðversson skrifar 13. mars 2026 07:30 Mikil og stór skref voru tekin í menningarmálunum í Kópavogi á bæjarstjórnarfundi í vikunni þegar meirihluti bæjarstjórnar samþykkti samninga við Smáralind um opnun metnaðarfullrar menningarmiðstöðvar í verslunarmiðstöðinni. Á sama fundi var einnig samþykkt að setja á fullt undirbúning opnunar á menningartengdri starfsemi í nýrri viðbyggingu við Kórinn í efri byggðum bæjarins. Óhætt er að segja að núverandi meirihluti bæjarstjórnar bæti nú enn um betur eftir að hafa staðið vel við bakið á menningarstarfi í bænum undanfarin ár. Árið 2023 var ráðist í uppstokkun á rekstri menningarhúsanna í miðbæ Kópavogs. Áherslum í starfi safnanna var breytt og samþætting aukin Skemmst er frá því að segja að breytingarnar tókust afar vel og aðsókn að menningarhúsunum hefur aukist margfalt. Vert er að minnast nú viðbragða minnihluta bæjarstjórnar við breytingunum 2023. Þau hafa ekki hafa elst vel. Gagnrýnin var óvægin. Gerræðisleg vinnubrögð og atlaga að menningu, skortur á samráði og fúsk voru uppistaðan í gagnrýninni á okkar störf. Nú þegar næstu stóru skref eru tekin er minnihlutinn við sama heygarðshornið. Stóru orðin hvergi spöruð og málflutningur á þá leið að hér sé verið að fremja stórkostleg afglöp og stefna rekstri bæjarins í stórhættu. Að ógleymdum valdhrokanum sem meirihlutinn sýnir. Vitanlega er hverjum sem er frjálst að vera mótfallinn þeim góðu verkefnum sem verið er að vinna að í Kópavogi. Það er hinsvegar ekki gott að dreifa villandi upplýsingum. Um það gerist oddviti Viðreisnar i Kópavogi sek þegar hún heldur því fram að bærinn hyggist reka Vetrargarðinn í Smáralind næstu 10 árin og greiða fyrir það 1,5 milljarð króna. Hvílík fjarstæða! Er nema von að spurt sé hvaða reiknistokk oddvitinn er að nota? Fjárhæðir í leigusamningi við Smáralind eru vissulega nokkrar en þær eru órafjarri því að vera á pari við það sem oddvitinn heldur fram. Árlegur rekstrarkostnaður menningarmiðstöðvarinnar í heild er áætlaður um 150 milljónir króna. Þar er verið að horfa á reksturinn í heild þ.e. laun, húsnæðiskostnað og allan annan rekstrarkostnað. Til samanburðar er sambærilegur kostnaður við rekstur bókasafnsins í Fannborg 240 milljónir króna á ári og ársvelta bæjarins nálægt 60 milljörðum. Mögulega er hér um reikniskekkju að ræða hjá oddvita Viðreisnar. Hún leiðréttist hér með. Oddviti Framsóknar í Kópavogi og formaður bæjarráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Menning Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Orri Hlöðversson Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar