Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Eiður Þór Árnason skrifar 12. mars 2026 19:37 Frá aðgerðum í Djúpinu í dag. Landsbjörg Björgunarsveitir hafa verið boðaðar út norðan og sunnan Holtavörðuheiðar vegna á annan tug ferðalanga sem eru í að minnsta kosti fimm föstum bílum á heiðinni. Þó nokkuð hefur verið um að björgunarsveitir hafi aðstoðað ferðalanga sem hafa fest bíla sína í dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Ferðalangar í að minnsta kosti tveimur bílum hafi til að mynda verið í vandræðum á Klettshálsi. Fóru björgunarsveitirnar Heimamenn frá Reykhólum og Lómfell á Brjánslæk á staðinn til að aðstoða þá. Frá aðgerðum í Djúpinu í dag.Landsbjörg Þar að auki voru þó nokkur verkefni á Súðavík fyrir björgunarsveitina Kofra, bæði innan bæjar en líka inn í Djúpi, að sögn Landsbjargar. Veður er sagt fara enn versnandi og nú á suðvesturhorninu. Biðlar Landsbjörg því til þeirra sem þurfa að vera á ferðinni að fara ekki vanbúin af stað. Frá aðgerðum í Djúpinu í dag.Landsbjörg Erfiðar aðstæður víða Þó nokkur snjóflóð hafa fallið á norðanverðum Vestfjörðum í dag en ekki er talin hætta í byggð sem stendur. Þá var Flateyrarvegi lokað í kvöld vegna snjóflóðahættu. Einnig er varað við aðstæðum á Norðvesturlandi og við Hellisheiði. Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Vestfirði, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Strandir og Norðurland vestra. Á Norðurlandi varar Veðurstofan við snjóflóðahættu á Siglufjarðarvegi og Ólafsfjarðarvegi. Að sögn veðurfræðings Vegagerðarinnar er hríð á fjallvegum á norðvestanverðu landinu og getur færð spillst frá Snæfellsnesi og austur að Tröllaskaga. Hvasst og blint í éljum og skafrenningi á Hellisheiði og í Þrengslum í nótt, frá klukkan 22 til klukkan 7 í fyrramálið. Einnig ber á snörpum vindhviðum, um 35 metrar á sekúndu, undir Eyjafjöllum í nótt til 9 í fyrramálið.
Umferðaröryggi Björgunarsveitir Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira