Viktor Gísli frábær og Barca endaði á toppnum Sindri Sverrisson skrifar 11. mars 2026 21:31 Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar enduðu í 1. sæti B-riðils Meistaradeildar Evrópu. Þeir fara beint í 8-liða úrslitin ásamt Magdeburg. EPA/Johan Nilsson Viktor Gísli Hallgrímsson varði frábærlega fyrir Barcelona í kvöld en Íslendingarnir í Magdeburg urðu aftur að sætta sig við tap og enda í 2. sæti B-riðils Meistaradeildar Evrópu í handbolta.
Börsungar voru nánast búnir að tryggja sér efsta sæti riðilsins fyrir kvöldið, með því að verða fyrstir til að vinna Magdeburg í næstsíðustu umferðinni. Þeir þurftu aðeins eitt stig í kvöld en unnu stórsigur, 47-27, gegn Eurofarm Pelister frá Norður-Makedóníu. Viktor var með mikið betri tölfræði en kollegi hans hjá Barca, Emil Nielsen, í kvöld því Viktor varði 12 af 24 skotum sem hann fékk á sig, eða 50%. Nielsen varði 6 af 21 skot og var með 28,57% markvörslu. Elvar með en Ómar fékk frí Íslendingarnir í Magdeburg máttu þola tap gegn PSG í Frakklandi, 34-26, en endar samt í 2. sæti B-riðils og fer með bArcelona beint í 8-liða úrslitin. Góðu fréttirnar fyrir Íslendinga eru þær að Elvar Örn Jónsson er kominn á ferðina eftir meiðslin á EM og skoraði þrjú mörk í kvöld. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði eitt en Ómar Ingi Magnússon, sem fékk leyfi frá komandi landsleikjum vegna þess að von er á erfingja, var ekki í leikmannahópi Magdeburg í kvöld. Fyrr í kvöld gerði Pick Szeged, lið Janusar Daða Smárasonar, 30-30 jafntefli við Wisla Plock í Póllandi. Janus var ekki á meðal markaskorara en úrslit kvöldsins þýða að Pick Szeged endar í 6. sæti B-riðils og fer ásamt PSG, GOG og Wisla Plock í umspil um að komast í 8-liða úrslitin.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Enski boltinn Valgeir þurfti fjórar mínútur til að skora fyrsta mark sitt fyrir Viborg Fótbolti „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira