Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Aron Guðmundsson skrifar 11. mars 2026 23:02 Igor Tudor - knattspyrnustjóri Tottenham Vísir/Getty Hjörvar Hafliðason, helsti knattspyrnusérfræðingur þjóðarinnar segir það vel líklegt að Tottenham fallir úr ensku úrvalsdeildinni. Of mörgum leikmönnum liðsins standi á sama. Hjörvar er með stjóra í huga sem gæti bjargað liðinu frá falli.
Hjörvar er ósammála stórum prófílum í knattspyrnuheiminum sem gagnrýndu Igor Tudor, knattspyrnustjóra Tottenham harðlega fyrir það hvernig hann tók á aðstæðum í gær þegar að markmaður Tottenham hafði gerst ítrekað sekur um slæm mistök. Allt vonlaust Hann er hins vegar á því að Tudor, sem hefur enn ekki tekist að stýra Tottenham til sigurs frá því að hann tók við stjórnartaumunum fyrir tæpum mánuði síðan, fái ekki mikið meiri tíma í starfi. Kannski bara komandi leik gegn Liverpool. „Ég held hann verði látinn fara,“ sagði Hjörvar Hafliðason í samtali við íþróttadeild Sýnar fyrr í dag. „Það var allt við hans líkamstjáningu í gær sem var vonlaust. Hann tók ekki í höndina á leikmönnum sínum sem voru að koma af velli. Hann skilur ekki félagið. Virðist ekki alveg átta sig á enska boltanum. Mögulega fær hann þennan Liverpool leik á sunnudaginn. Ég geri ráð fyrir því að hann fari.“ Með rétta manninn í verkið Og segist Hjörvar vita um fullkominn mann í verkið fyrir Tottenham til þess að reyna halda liðinu í ensku úrvalsdeildinni. „Ég held að Marco Silva, knattspyrnustjóri Fulham, sé rétti maðurinn fyrir Tottenham. Ég held að tímabilið hafi svolítið klárast fyrir Fulham um síðustu helgi í enska bikarnum þegar að liðið féll úr leik gegn Port Vale. Silva er reynslumikill stjóri í þessari deild, þekkir hana inn og út. Það er aðalatriðið. Þekktu ensku úrvalsdeildina ef þú ætlar að koma inn og bjarga þessu. Ef þeir fá hann ekki gæti ég séð fyrir mér Sean Dyche í þessu starfi. Tottenham menn eru hins vegar of stoltir til þess að taka Sean Dyche.“ Marco Silva, knattspyrnustjóri Fulham. Vísir/Getty Auðvitað geti Tottenham fallið Tottenham er einu stigi frá fallsæti og þá hefur liðið tapað sex leikjum í röð í öllum keppnum. Það er sögulega lélegur árangur í sögu félagsins. Framundan er erfitt leikjaprógram gegn Liverpool á útivelli um komandi helgi á Anfield, Atletico Madrid í Meistaradeildinni nokkrum dögum síðar og svo fallbaráttuslagur gegn Nottingham Forest. Gætum við séð Tottenham falla úr ensku úrvalsdeildinni? „Já auðvitað getum við séð það gerast. Eins og staðan er núna er Tottenham lélegasta liðið í ensku úrvalsdeildinni. Kannski er Burnley slakara en þú getur eiginlega ekki borið þetta Tottenham lið saman við Nottingham Forest eða West Ham akkúrat núna. Þau lið eru bara betri. Það eru alveg fínar líkur á því að þetta Tottenham lið fari niður.“ Margir af leikmönnum liðsins séu ekki með hugann við verkefnið. Micky van de Ven, varnarmaður TottenhamGetty/Julian Finney „Micky van de Ven er bara farinn að hugsa um að Liverpool eða Manchester United sé á höttunum eftir sér, Cristian Romero er væntanlega með Atletico Madrid á eftir sér. Þá er Palinha bara á láni og er alveg sama. Sama má segja um Kolo Muani sem er drullusama. Þeir verða finna þessa leikmenn sem eru til í að gera eitthvað fyrir félagið, til í að bjarga þessu og ekkert vera fikta meira í þessum markmönnum. Vicario er fínn.“ Leikur sem þurfi ekki að skilgreina feril Kinský Talið berst aftur að Kinský því ekki er annað hægt en að finna til með Tékkanum unga sem hafði fyrir leikinn gegn Atletico Madrid aðeins komið við sögu í tveimur leikjum fyrir Tottenham á tímabilinu í enska deildarbikarnum. „Þetta er alveg eins og með Loris Karius hjá Liverpool um árið gegn Real Madrid. Maður fann alveg til með honum.“ „Það elska allir skemmtilegar endurkomur. Hugaðu þér ef Kinský kemur bara til baka úr þessu. Tudor gat bara ekki annað gert en að taka hann af velli á þessum tímapunkti í leiknum. Því Kinský var alveg vaskaður í þessum leik. Ef þú skoðar bara úrslit leiksins, 5-2, og hann fer út af í stöðunni 3-0. Þeir allavegana héldu jöfnu eftir að þeir skiptu um markmann. Þetta mun ekkert skilgreina Kinský. Ef hann verður síðan frábær markmaður þá verður þetta bara einn af þessum lélegu leikjum og áfram með þetta. Þetta gerist bara svo sjaldan. Þess vegna er fólki svona brugðið. Við eigum eftir að sjá þetta miklu oftar í framtíðinni.“
Enski boltinn Tottenham Hotspur Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Tiger rýfur þögnina og ætlar að leita sér hjálpar Sport Danir að þvælast fyrir viðræðum HSÍ við Snorra og Arnór? „Styttist í fréttir“ Handbolti „Dómarinn þarf að vera 100% viss um að þetta sé viljandi“ Körfubolti Sjáðu Gylfa Þór bæta við markamet sitt Fótbolti Brostnir draumar Dana en Tékkar á HM í fyrsta sinn í tuttugu ár Fótbolti Baulað á enska landsliðið eftir sögulegt tap Fótbolti Tiger Woods heldur fram sakleysi sínu Golf Aftur mistekst Ítölum að tryggja sér sæti á HM Fótbolti Ópíóðar í vasa Woods sem segist hafa verið í símanum Golf Fyrrverandi eiginkonan hefur áhyggjur af Tiger Golf Fleiri fréttir De Zerbi tekinn við Tottenham Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Starf Howe í hættu De Zerbi opinn fyrir því að taka strax við Tottenham Þrír af hverjum fjórum stuðningsmönnum ósáttir við VAR Biðja knattspyrnukonur afsökunar Enska landsliðskonan missti fóstur Tottenham sagt vilja fá De Zerbi sem nýjan stjóra Arsenal-stjörnurnar yfirgefa landslið sín hver á fætur öðrum Tudor hættir störfum hjá Tottenham Yfirmaður hjá Bayern hæðist að Liverpool Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham Átta leikmenn yfirgefa enska landsliðshópinn City fór langt með að tryggja titilinn í stórsigri gegn United Óvænt byrjunarlið hjá enska landsliðinu í kvöld Leicester City tapaði næstum því tólf milljörðum á einu tímabili „Salah gæti spilað í sjö ár í viðbót“ Roy Hodgson snýr óvænt aftur í boltann 78 ára gamall Rodri daðrar opinberlega við Real Madrid Stjóri í leyfi út tímabilið eftir andlát nýfædds sonar Liverpool-goðsögn greind með heilabilun Samfélagsskjöldurinn þarf að víkja af Wembley fyrir The Weeknd Tíu flottustu mörk Salah í enska boltanum Finnst Salah vera meiri goðsögn í ensku úrvalsdeildinni en Ronaldo Stuðningsmaður Man. United missir sætið sitt: „Ég er hjálparvana og vonlaus“ Pochettino segist sakna enska boltans Salah yfirgefur Liverpool eftir tímabilið PSG vill auðvelda sér lífið fyrir Liverpool-leikinn Úr fernu yfir í einn bikar: „Hugsa með hryllingi til þess hvað Barcelona gæti gert Arsenal“ Gordon: „Sunderland ekkert sérstaklega góðir miðað við Newcastle“ Sjá meira