Samstarf

Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Ís­landi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar

Orkan
Ásdís Sigurðardóttir, gæðastjóri hjá Orkunni segir vottunina mikinn áfanga.
Ásdís Sigurðardóttir, gæðastjóri hjá Orkunni segir vottunina mikinn áfanga.

„Umhverfismálin eru órjúfanlegur hluti af daglegum rekstri okkar og þessi vottun staðfestir það,“ segir Ásdís Sigurðardóttir, gæðastjóri hjá Orkunni. Orkan hefur nú, fyrst allra eldsneytisfyrirtækja á Íslandi, hlotið alþjóðlega ISO 14001 umhverfisvottun fyrir allar 75 þjónustustöðvar sínar, sem markar tímamót í umhverfisstjórnun innan eldsneytisgeirans á Íslandi. 

Með vottuninni setur Orkan ný viðmið um samræmd og gagnsæ vinnubrögð í greininni.

ISO 14001 er umhverfisvottun sem er veitt af British Standard Institution. ISO 14001 er einn mikilvægasti alþjóðlegi staðallinn á sviði umhverfisstjórnunar. Staðallinn byggir á því að fyrirtæki geti sýnt fram á í verki að það fylgi öllum lögum og reglugerðum sem tengjast starfseminni, greini og stýri umhverfisáhrifum, meti og lágmarki tengda umhverfisáhættu og hafi virkt innra eftirlit. „Staðallinn gerir jafnframt kröfu um reglulegt ytra eftirlit og stöðugar umbætur sem tryggja að árangurinn sé ekki tímabundinn heldur viðvarandi,” bendir Ásdís á.

Leiðandi í umhverfismálum á orkumarkaði

Rekstur eldsneytisstöðva hefur óhjákvæmilega áhrif á umhverfið og kröfur til fyrirtækja um ábyrgð og gagnsæi í umhverfismálum hafa stöðugt verið að aukast. Við hjá Orkunni viljum að sjálfsögðu mæta þeim kröfum af fullum krafti," segir Ásdís, 

en Orkan hefur ásett sér að vera leiðandi í umhverfismálum á orkumarkaði. 

Vinnan hófst um mitt síðasta ár þegar fyrirtækið réðst í markvissa innleiðingu á mælanlegum umhverfisviðmiðum í öllum rekstri sínum. Markmiðið var að fá óháða staðfestingu á að reksturinn stæðist alþjóðlegar kröfur og tryggja samræmd vinnubrögð þvert á allar þjónustustöðvar. 

„Það þýðir að á öllum stöðvum Orkunnar gilda nú skýrir og samræmdir verkferlar um meðhöndlun spilliefna, frárennslismál, viðbrögð við olíuleka og flokkun úrgangs, auk reglubundins innra eftirlits“ segir Ásdís.

„Vottunin er mikilvægur áfangi á okkar vegferð og undirstrikar skuldbindingar okkar gagnvart viðskiptavinum, samfélaginu og umhverfinu,“ bætir hún við. 

Með henni öðlumst við alþjóðlega staðfestingu á því að við stýrum umhverfisáhrifum rekstrarins með skipulögðum og mælanlegum hætti.

Umfangsmikið ferli að fá vottunina

Orkan er fjölorkufélag sem rekur 75 sjálfsafgreiðslustöðvar um allt land og er eina félagið sem selur alla fimm orkugjafana; bensín, dísel, metan, vetni og rafmagn. Markmið Orkunnar er að bjóða lægri verð og veita bestu þjónustuupplifun til viðskiptavina með snjöllum lausnum.

Ferlið var því umfangsmikið, með vítt net sjálfsafgreiðslustöðva um allt land, og fól meðal annars í sér að yfirfara alla verkferla, skráningar og eftirlit, auk þess að skýra ábyrgð og auka fræðslu til starfsfólks og verktaka. „Í mörgum tilvikum var verið að formfesta og samræma verklag sem áður hafði verið óformlegt. Með vottuninni höfum við nú formlega skuldbundið okkur til að vernda umhverfið, draga úr áhrifum rekstrarins og vinna að stöðugum umbótum til framtíðar,“ segir Ásdís.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×