Guardiola ætlar að skella sér í frí Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. mars 2026 09:59 Pep Guardiola fékk gult spjald fyrir að biðja um brot á Kieran Trippier, og þar með tveggja leikja bann. Ben Roberts - Danehouse/Getty Images Pep Guardiola hafði ekki mjög gaman af því að vera dæmdur í tveggja leikja bann eftir 1-3 sigur Manchester City gegn Newcastle í gær en ætlar að nýta tímann og skella sér í smá frí.
Guardiola fékk gult spjald fyrir að mótmæla dómaranum, þegar brot var ekki dæmt á Kieran Trippier eftir samstuð við Jeremy Doku. Þjálfarinn fékk gult spjald fyrir mótmælin en þetta var hans sjötta gula spjald á tímabilinu. Þjálfarar fá eins leiks bann fyrir hver þrjú gul spjöld sem þeir fá, en samkvæmt nýjum reglum sem tóku gildi á þessu tímabili, fá þjálfarar tveggja leikja bann þegar þeir eru komnir með sex gul spjöld. Guardiola er sá fyrsti sem gerir það. Hann mun þó ekki missa af úrslitaleik Manchester City í deildabikarnum gegn Arsenal þann 22. mars. Bann fyrir gul spjöld gildir ekki í úrslitaleikjum en Guardiola tekur út bann í leiknum á undan og eftir úrslitaleikinn, í deildarleik gegn West Ham og svo í átta liða úrslitum FA bikarsins. „Leyfið mér að segja ykkur eitt, við eigum öll metin hér í landi, eiginlega öll metin. Nú eigum við metið yfir flest gul spjöld fyrir þjálfara. Ég vil slá öll met og nú hef ég gert það,“ sagði Guardiola gramur en glettinn. „Tveggja leikja bann núna. Ég fer bara í frí næstu tvo leiki… Meira að segja eftir áratug hérna þá eru hlutir sem ég skil ekki. Skoðaðu brotið. Auðvitað kem ég Doku til varnar þarna.“
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira