Þegar þolendur stíga fram reynir á samfélagið Þóra Sigfríður Einarsdóttir og Kristín Skjaldardóttir skrifa 8. mars 2026 10:31 Landsamráðsfundur ríkislögreglustjóra um aðgerðir gegn ofbeldi var haldinn 4. mars sl. og er enn ein staðfesting þess að óþol gagnvart ofbeldi fer vaxandi í samfélaginu. Vilji til að takast á við ofbeldi, hvar sem það birtist, virðist verða sífellt skýrari. En þegar þolendur stíga fram reynir á samfélagið allt, hvernig við bregðumst við. Samfélagið hefur þó enn ákveðnar hugmyndir um hverjir verði fyrir ofbeldi og hverjir beiti því. Þegar frásagnir passa ekki við þessar fyrirfram mótuðu hugmyndir getur það haft áhrif á hvort þolendur treysti sér til að stíga fram. Landsamráðsfundur ríkislögreglustjóra er mikilvægt skref í þá átt að leiðrétta slíkar hugmyndir. Hverjir verða fyrir ofbeldi? Ofbeldi er að finna í öllum lögum samfélagsins og þar geta bæði gerendur og þolendur verið hver sem er, óháð kyni, stöðu eða bakgrunni. Á fundinum komu einmitt fram fjölbreyttar frásagnir af ofbeldi og afleiðingum þess. Slíkar frásagnir skipta miklu máli, því þær hjálpa okkur að átta okkur á hinum fjölmörgu birtingarmyndum ofbeldis. Fyrir þolendur er þessi sýnileiki ómetanlegur. Ef frásagnir eru einhæfar og einskorðast við ákveðnar tegundir ofbeldis eða ákveðna hópa þolenda er hætta á að þeir sem ekki passa inn í þær hugmyndir samfélagsins treysti sér ekki til að stíga fram. Hugrekki þeirra sem stíga fram Það krefst mikils hugrekkis að segja frá ofbeldi sem stangast á við ríkjandi hugmyndir. Bakkakotsdrengirnir eiga miklar þakkir skildar fyrir að hafa stigið fram og einnig þær fyrirmyndir í samfélaginu sem í kjölfarið sögðu frá eigin reynslu. Frásagnir þeirra minna okkur á að hver sem er getur orðið fyrir ofbeldi. Að verða fyrir ofbeldi segir ekkert um eiginleika viðkomandi eða styrk hans sem manneskju. Ofbeldið segir hins vegar eitthvað um þann sem velur að beita því. Opinská umræða um ofbeldi er ein af forsendum þess að hægt sé að takast á við vandann og rjúfa þann vítahring sem ofbeldi getur skapað. Þegar ofbeldi er gert sýnilegt verður samfélagið betur í stakk búið til að bregðast við því. Mikilvægi úrræða fyrir þolendur ofbeldis Ein af mikilvægustu forsendum þess að hægt sé að uppræta ofbeldi er að skapa aðstæður þar sem fólk getur stigið fram og sagt frá því sem það hefur upplifað. Án slíkra leiða er hætta á að fólk fái ekki þann stuðning sem það þarf. Sú mannlega þjáning sem felst í því að bera slíkan harm í hljóði getur verið djúpstæð og áhrif hennar vara oft ævilangt. Saga okkar sýnir jafnframt að þegar nýir farvegir opnast fyrir þolendur breytist skilningur samfélagsins. Þegar Kvennaathvarfið opnaði fór heimilisofbeldi í auknum mæli að verða hluti af opinberri umræðu. Með tilkomu Stígamóta opnaðist rými til að ræða kynferðisofbeldi á nýjan hátt. Barnahús markaði síðan tímamót í því hvernig samfélagið bregst við kynferðisofbeldi gegn börnum. Á síðari árum hafa einnig orðið til nýir farvegir innan íþrótta- og æskulýðsstarfs, meðal annars með embætti samskiptaráðgjafa, þar sem iðkendur geta leitað með reynslu af ofbeldi eða óviðeigandi samskiptum. Þessi dæmi minna okkur á að þegar fólk fær öruggan stað til að leita til og segja frá verður ofbeldið sýnilegra og samfélagið betur í stakk búið til að bregðast við. Ef við viljum raunverulega uppræta ofbeldi verðum við að byggja upp samfélag þar sem fólk þorir að segja frá. Samfélag þar sem frásagnir eru teknar alvarlega og þar sem þolendur vita að þeir standa ekki einir. Að skapa slíkt samfélag er ekki aðeins verkefni stjórnvalda eða stofnana, það er sameiginleg ábyrgð okkar allra. Höfundar starfa báðar hjá Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Þóra er sérfærðingur í klínískri barnasálfræði með áfallasálfræði sem undirgrein og Kristín er félagsráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynbundið ofbeldi Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar