Fyrrum heimsmeistari í tveggja ára bann fyrir „feluleik“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. mars 2026 23:17 Fred Kerley fagnar hér árangri sínum á Ólympíuleikunum í París 2024. Getty/Andrzej Iwanczuk Fred Kerley, fyrrum heimsmeistari í 100 metra hlaupi, hefur verið dæmdur í tveggja ára bann fyrir brot á reglum um dvalarstaðaskráningu vegna lyfjaeftirlits.
Dómstóll komst að þeirri niðurstöðu að Kerley hefði sýnt af sér vanrækslu og gáleysi með því að fylgja ekki reglum um lyfjaeftirlit eftir að Bandaríkjamaðurinn var skráður með þrjú brot á slíkri dvalarstaðaskráningu á tímabilinu 11. maí til 6. desember 2024. Kerley var settur í bráðabirgðabann af Siðanefnd alþjóðafrjálsíþróttasambandsins (AIU) í ágúst á síðasta ári og missti því af heimsmeistaramótinu í Tókýó í september. The AIU has announced 2x Olympic 100m medalist, 2022 World champion Fred Kerley has received a two-year ban for whereabouts failures. His suspension sidelines him through August 2027. Any results from Dec. 6, 2024 – Aug. 12, 2025 have been disqualified.The AIU found Kerley… pic.twitter.com/ep2APaaoFZ— CITIUS MAG (@CitiusMag) March 6, 2026 Keppnisbann hins þrítuga Kerley gildir til 11. ágúst 2027 og keppnisárangur hans á tímabilinu 6. desember 2024 til 12. ágúst 2025 hefur verið ógiltur, þar með talin verðlaunafé, öll verðlaun og allir titlar. Kerley varð heimsmeistari í 100 metra hlaupi árið 2022 og hefur unnið tvenn verðlaun á Ólympíuleikum. Kerley hefur einnig verið gert að greiða Alþjóðafrjálsíþróttasambandinu þrjú þúsund pund í lögfræðikostnað og önnur útgjöld en það eru meira en fimm hundruð þúsund í íslenskum krónum. Í alþjóðalyfjareglunum kemur fram að íþróttamaður megi ekki missa af þremur lyfjaprófum og/eða skráningarbrotum innan tólf mánaða tímabils. Siðanefndin sagði að áfrýjunardómstóll hefði ekki tekið til greina fjórða meinta brot Kerley á dvalarstaðaskráningu þann 7. desember, þar sem þegar hefði verið komist að þeirri niðurstöðu að hann hefði framið brot á grundvelli fyrstu þriggja. I’m tired of holding everything in.You can’t control me, and the truth is louder than silence. pic.twitter.com/0rV9gvT041— Fred Kerley (@fkerley99) March 6, 2026 Skömmu eftir að bannið var tilkynnt birti Kerley fjölda færslna á samfélagsmiðlum. Í einni þeirra var mynd af honum þar sem hann ryðst í gegnum fylkingu manna klæddra eins og herlögreglumenn í búningum merktum „AIU“, „WADA“ (Alþjóðalyfjaeftirlitið) og „USADA“ (Bandaríska lyfjaeftirlitið). „Ég er orðinn þreyttur á að halda öllu inni,“ stóð þar. „Þið getið ekki stjórnað mér og sannleikurinn er háværari en þögnin.“ Í annarri færslu, sem gæti hafa verið vísun í lyfjaeftirlitsmennina sem komu á einum þeirra daga sem hann missti af prófi, stóð: „Eitthvert tilviljanakennt númer frá Mexíkó sem leit út eins og svikasímtal og það er ætlast til að ég svari því? Ég bý í Bandaríkjunum, af hverju er númer frá Mexíkó að hringja í símann minn?“ skrifaði Kerley.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Elín Klara sænskur meistari Handbolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Formúla 1 Fleiri fréttir Gengi Framara komið skemmtilega á óvart Dagskráin í dag: Sjötta umferð Bestu deildar kvenna Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Stúkan: FH í miklum vandræðum Elín Klara sænskur meistari Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Erfiður dagur á skrifstofunni Bruno bætti metið eða hvað? Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Dagskráin í dag: Lokaumferð enska boltans Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Sjá meira