Getum við hætt orðaleikjum um einhverfa og farið að gera eitthvað? Ásdís Bergþórsdóttir skrifar 6. mars 2026 10:02 Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) hefur svarað áhyggjum ýmissa aðila um að einhverfir fái ekki eðlilega geðheilbrigðisþjónustu með því að einhverfum sé ekki vísað sjálfkrafa frá, að einhverfa sé ekki lengur frábending í þjónustu geðheilsuteymanna og að fjórðungur skjólstæðinga heilsugæslunnar sé á einhverfurófi. Þetta eru allt orðaleikir en ef maður hlustar vel þá segja þeir í raun nákvæmlega hvert vandamálið er og hvað þarf að gera. Enginn hefur haldið því fram að öllum einhverfum sé alltaf vísað frá. Það er vel vitað að tilvísanir eru lesnar vel yfir af inntökuteymum meðal annars til að finna fólk með einhverfueinkenni og skoða hvort meðferð muni henta þeim. Ástandið er þannig að góðir læknar sleppa lýsingum á einhverfueinkennum í tilvísunum sínum til almennu geðheilsuteymanna, einfaldlega til að auka líkurnar á að fólk fái þjónustu. Með öðrum orðum eru þeir að reyna að svindla fólki inn í kerfi sem vill ekki einhverft fólk og telur sig lítið sem ekkert geta gert fyrir það. Þeir gera þetta af því að hinn möguleikinn í stöðunni er slæmur. Ef fólki er ekki svindlað inn í kerfið þá fær það enga geðheilbrigðisþjónustu. Forstjóri HH segir að fjórðungur einstaklinga í meðferð geðheilsuteymanna sé einhverfur. Það er sérstakt því að í svari við fyrirspurn Rósu Guðbjartsdóttur segir heilbrigðisráðherra: „Frá árinu 2020 hefur 1.997 einstaklingum verið synjað um þjónustu hjá geðheilsuteymum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem jafngildir um 40,9% af tilvísunum. Ekki liggja fyrir tölulegar upplýsingar um hversu margir þeirra hafa fengið einhverfugreiningu eða hjá hve mörgum leikur grunur á einhverfu.“ HH getur gefið upp hversu margir í meðferð þeirra eru einhverfir eða með einhverfueinkenni en veit ekkert um hversu margir þeirra sem er hafnað eru einhverfir. Þetta stenst varla. Tölvukerfið getur spýtt út hlutfalli einhverfra í meðferð en ekki hlutfalli einhverfra í höfnunum? Ætli það sé ekki líklegra að þessi fjórðungstala sé gróf mannleg áætlun án mælinga. Hversu mörgum af þessum fjórðungi hefur verið svindlað inn vitum við ekki. Þannig að þessi tala segir ekkert um hversu auðvelt eða erfitt það er fyrir einhverfa að komast í almenn geðheilsuteymi. Auk þess er það sérstakt í ljósi fullyrðinga forstjórans um að það séu nokkrir mánuðir síðan einhverfa hætti að vera frábending að allt í einu sé fjórði hver þjónustuþegi einhverfur. Allt þetta eru orðaleikir. Getum við snúið okkur að því að leysa vandamálið, í staðinn fyrir að láta líta út fyrir að allt sé í góðu? HH hefur lýst því yfir við Heilbrigðisráðuneytið að geðheilsuteymi HH miði meðferðarframboð sitt við að sem flestir geti nýtt sér það. Flestir eru ekki einhverfir þannig að almennu geðheilsuteymin hafa ekki útbúið meðferðarframboð fyrir einhverfa. Geðheilsuteymin hafna svo einhverfum á þeim forsendum að einhverfir geti ekki nýtt sér meðferðarframboð þeirra. Á sama tíma og forstjóri HH segir að fjórðungur þjónustuþega sé einhverfur þá er það yfirlýst stefna HH að útbúa ekki meðferð fyrir einhverfa af því að þeir eru svo fáir. Ég bara næ ekki rökhugsuninni þarna. Almennu geðheilsuteymin samþykkja, hins vegar, oft einhverfa sem geta maskað vel (látið líta út fyrir að þeir séu óeinhverfir) og þeir einstaklingar maska svo í gegnum alla meðferðina enda gengur meðferðin oft út á verðlauna masking. Það væri æðislegt nema fyrir það að nær allir fræðimenn í einhverfu eru sammála um að masking auki kvíða og þunglyndi. Þannig að hið óyrta skilyrði fyrir inngöngu einhverfra í geðheilsuteymi er að fólk viðhaldi kvíða og þunglyndi í meðferðinni með því að maska. Hver er þá tilgangurinn með meðferðinni? Hversu erfitt er að koma fram með meðferðarframboð fyrir einhverfa? Varla er það svo erfitt því að Geðheilsuteymi barna hannaði sjálft meðferð fyrir einhverfa unglinga, EDAM námskeið fyrir einhverfa unglinga. Af hverju hefur það ekki verið útfært fyrir fullorðna? Geðheilsuteymi barna og almenn geðheilsuteymi höfuðborgarsvæðisins hafa sama yfirmann, framkvæmdastjóra geðheilbrigðisþjónustu HH. Veit hægri höndin ekki hvað sú vinstri gerir? Hvað er raunverulega að? Skortur á meðferðarframboði? Já, en það er hægt að búa til meðferðarframboð fyrir einhverfa og HH hefur reynslu af slíku. Skortur á þekkingu? Já, það er aldrei næg þekking en þekking á geðmeðferð einhverfra verður aldrei til nema í gegnum geðmeðferð einhverfra. Skortur á fjármunum? Hvað ætli það sé dýrt að fá rangar upplýsingar í tilvísunum og ranga meðferð. Viðeigandi þjónusta gæti skilað minni líkum á örorku og sparað samfélaginu tugi ef ekki hundruð milljóna. Lausnin er einföld. Það þarf að auka þekkingu almennra geðheilsuteyma á einhverfu og geðmeðferð einhverfra og auka meðferðarframboð til einhverfra. Einhverfir eru hluti af samfélagi okkar eins og örvhentir og samkynhneigðir. Samkynhneigðum er ekki hafnað í almennum geðheilsuteymum af því að meðferðarframboð hentar þeim ekki. Það er bara gert ráð fyrir samkynhneigðum. Núverandi ástand í geðheilbrigðismálum einhverfra er þjóðarskömm. Það skiptir engu hverjum er þar um að kenna. Ef fólki líður betur þá skal ég taka ábyrgðina á núverandi ástandi á mig. Það sem skiptir máli er að leysa vandann. Það get ég hins vegar ekki. Ég gæti aldrei orðið þverfaglegt teymi þó að það væri minn æðsti draumur í lífinu. Hættum afsökunum og snúum okkur að því að leysa vandann. Tökum ábyrgð á framtíðinni og sameinumst um að byggja upp framtíð fyrir einhverfa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 18.04.2026 Halldór Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson Skoðun Á leiksviði lífsins Hörður Torfason Skoðun Skoðun Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun „Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Aðlögun Íslands að ESB: Þrír ólíkir farvegir Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Sanngjörn þjónusta fyrir alla Kópavogsbúa - líka í efri byggðum Örn Arnarson skrifar Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar Skoðun Á leiksviði lífsins Hörður Torfason skrifar Skoðun Ekki nóg að ráða – við þurfum að rækta Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason skrifar Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson skrifar Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson skrifar Skoðun Vaxtarmörk eða valdsmörk sveitarstjórna Orri Björnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa og leiðin til Siglufjarðar Pétur Heimisson skrifar Skoðun Sterkur skólabær – vinnum þetta saman Jóhannes Már Pétursson skrifar Skoðun Það sem skiptir raunverulega máli Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eru sum hús full af lífi en önnur tóm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar Sjá meira
Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar
Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar
Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar
Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar
Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar
Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar