Þau skipa lista Viðreisnar í Reykjavík Agnar Már Másson skrifar 5. mars 2026 18:31 Framboðslisti Viðreisnar í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningar í vor var kynntur í hátíðarsal Laugarnesskóla. Þorvaldur Davíð reyndist fara í framboð eftir allt saman. Aðsend Róbert Ragnarsson, fyrrverandi Bæjarstjóri Grindavíkur, og leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson skipa annað og þriðja sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Viðreisn í Reykjavík kynnti í kvöld lista sinn fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor við athöfn í Laugarnesskóla. Listinn var valinn af nefnd, að undanskildum oddvitanum. Eins og fram hefur komið leiðir fjölmiðlakonan Björg Magnúsdóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður Einars Þorsteinssonar, listann. Í janúar vann Björg Magnúsdóttir sannfærandi sigur í oddvitaprófkjöri flokksins í Reykjavík, þar sem hún hlaut tæplega 48 prósent greiddra atkvæða. Í ræðu í kvöld boðaði Björg „vorhreingerningu“ í höfuðborginni. Björg kynnti listann í kvöld.Vísir Róbert Ragnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Voga og Grindavíkur, skipar annað sæti listans en hann var einn þriggja mótframbjóðenda Bjargar í prófkjörinu. Hinir tveir mótframbjóðendurnir eru ekki á listanum. Þriðja sætið skipar leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Hann hafði verið orðaður við framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borginni fyrir áramót en á þeim tímapunkti blásið af allan orðróm um framboð. Fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks Pírata Margrét Rós Sigurjónsdóttir, umhverfisfræðingur og framkvæmdastjóri Kolaportsins, skipar fjórða sæti en hún er fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks Pírata. Eyþór Máni Steinarsson, einn stofnenda Hopp, skipar svo fimmta sætið. Sjötta sætið skipar Sandra Hlín Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi Borgarholtsskóla og formaður Félags náms- og starfsráðgjafa. Sverrir Páll Einarsson, formaður ungliðahreyfingarinnar Uppreisnar, skipar sjöunda sætið. Listinn allur: Björg Magnúsdóttir, fjölmiðlakona og handritshöfundur Róbert Ragnarsson, stjórnsýsluráðgjafi Þorvaldur Davíð Kristjánsson, leikari Margrét Rós Sigurjónsdóttir, umhverfisfræðingur og framkvæmdastjóri Kolaportsins Eyþór Máni Steinarsson, frumkvöðull og meðstofnandi Hopp Sandra Hlín Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi Borgarholtsskóla og formaður Félags náms- og starfsráðgjafa Sverrir Páll Einarsson, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar og laganemi Monika Katarzyna Waleszczyńska, mannauðsstjóri Samúel Torfi Pétursson, skipulagsverkfræðingur Ingunn Rós Kristjánsdóttir, sálfræðikandídat, starfsmaður íbúðakjarna og formaður Viðreisnar í Reykjavík Hákon Skúlason, framkvæmdastjóri Emma Ósk Ragnarsdóttir, kennari og stjórnmálafræðingur Oddgeir Páll Georgsson, hugbúnaðarverkfræðingur Helga Dögg Björgvinsdóttir, viðskiptafræðingur Bjartur Hrafn Jóhannsson, starfsmaður neyðarskýlis Ragnheiður Dóra H. Jónsdóttir, stjórnmálafræðinemi og frístundaleiðbeinandi Jón Steindór Valdimarsson, lögfræðingur Ester Ósk Gestsdóttir Waage, verkefnastjóri Bjarki Fjalar Guðjónsson, lögfræðingur Diljá Ámundadóttir Zoega, fyrrv. varaborgarfulltrúi og sálgætir Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri GRID Emilía Björt Írisard. Bachmann, starfsmaður þingflokks Viðreisnar Sverrir Örn Kaaber, fyrrv. skrifstofustjóri Noorina Khalikyar, læknir Steinar Logi Hafsteinsson, fyrirtækjaráðgjafi Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir, deildarfulltrúi og verkefnastjóri hjá Listaháskóla Íslands Gústaf Berg Guðnýjarson, stjórnmálafræðingur Íris Arnlaugsdóttir, verkefnastjóri Unnar Geir Unnarsson, deildarstjóri Jana Guðrún Jahzara T. Maillard, nemi Jakob Löve, hagfræðinemi Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir, leiklistar- og tónlistarfræðingur Rúnar Guðjónsson, hagfræðingur María Malmquist, lögfræðinemi Ásmundur Helgason, bókaútgefandi Draumey Ósk Ómarsdóttir, leikskólaleiðbeinandi Helgi Hrafn Gunnarsson, hugbúnaðarsmiður og tækniráðgjafi Kristín A. Árnadóttir, fyrrv. sendiherra Haukur Árnason, kennari Andrea Þormar, list- og safnafræðingur Árni Grétar Jóhannsson, leikstjóri og leiðsögumaður Anna Hildigunnur Jónasdóttir, gagnasérfræðingur Úlfur Atli Stefaníuson, launaráðgjafi Ingileif Friðriksdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra Jón Gnarr, þingmaður og fyrrv. borgarstjóri Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi og fráfarandi oddviti Viðreisnar í Reykjavík
Viðreisn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira