Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Skreppa 9. mars 2026 13:40 Eva Dís Sigrúnardóttir hjá Endurgjaldi segir nýtt app færa akstursdagbókina úr hanskahólfinu og yfir í símann og einfalda málin til muna. Fjöldi fólks á Íslandi missir af tugum eða jafnvel hundruðum þúsunda króna á ári af því að það gleymir að fylla út akstursdagbók. Nú er komin rafræn lausn, Skreppa, sem heldur sjálfvirkt utan um aksturinn. „
Fólk sem keyrir einkabíl sinn í vinnunni á vegum vinnuveitanda á rétt á skattfrjálsum ökutækjastyrk en ferlið við að skrá aksturinn hefur verið svo tímafrekt og gamaldags að margir hafa einfaldlega sleppt því. Það er ástæðan fyrir því að Skreppa varð til. Markmiðið okkar er að færa akstursdagbókina úr hanskahólfinu og yfir í símann,“ útskýrir Eva Dís hjá Endurgjaldi, sem þróaði Skreppa. Ferlið var of þunglamalegt „Við töluðum við þó nokkra einstaklinga sem nota einkabílinn sinn reglulega í vinnutengdar ferðir. Fólk keyrir á fundi, milli starfsstöðva eða sinnir alls konar erindum fyrir vinnuveitandann. Til þess að fá greiddan ökutækjastyrk vegna slíkra ferða hefur fólk þurft að muna hverja ferð, skrá kílómetra, dagsetningar og tilgang aksturs og halda síðan utan um þetta í marga mánuði fyrir skil eða skila inn mánaðarlega til að fá greiddan ökutækjastyrk í hverjum mánuði. Þetta vill hreinlega gleymast og ökutækjastyrkurinn glatast þar með. Skreppa hins vegar aðstoðar fólk að sækja þann skattfrjálsa ökutækjastyrk sem það á rétt á, án þess að eyða tíma í pappírsvinnu eða utanumhald,“ segir Eva. Appið skráir aksturinn rafrænt og sjálfkrafa í bakgrunni síma notenda, sem þurfa einungis að flokka ferðirnar sem keyrðar eru og senda skýrslu rafrænt til vinnuveitanda. Það sem áður tók tíma og fyrirhöfn verður að nokkrum smellum í símanum. Eva segir appið einnig nýtast vinnuveitendum. „Stjórnendur og bókhaldsdeildir fyrirtækja eru oft að vinna úr misjöfnum gögnum og handvirkum skráningum sem getur verið tímafrekt að greiða úr. Dæmi eru um að bókhald sé að taka á móti kassakvittunum sem hefur verið krotað aftan á nú eða post it miðum sem ferðir eru skráðar á því fólk var ekki með akstursdagbókina við hendina. Fyrirtæki hafa færi á að kaupa aðgang að bakenda og gefa sínum bílstjórum aðgang að appinu sem fyrirtækið greiðir fyrir. Þá sendir starfsmaður ferðirnar sínar inn í bakenda til samþykktar af næsta yfirmanni og eftir samþykki þá getur stjórnandinn sent rafrænt á bókhaldið. Í bakenda fyrirtækisins er reiknaður hagkvæmnistuðull sem segir til um hvort starfsmaðurinn hafi ekið eðlilega vegalengd fyrir fyrirtækið. Þannig veitir hagkvæmnistuðullinn starfsmönnum aðhald i skráningu ökutækjastyrksins og tryggir að ekki sé verið að greiða fyrir óþarfa kílómetra. Sá yfirmaður sem samþykkir aksturinn getur ákveðið að greiða aðeins stystu mögulegu leið á milli staða en kerfið reiknar ávallt út stystu leið á milli áfangastaða. Mögulega er góð skýring á því af hverju starfsmaður valdi viðkomandi aksturleið og þá er sá kílómetrafjöldi samþykktur eða samið um sanngjarnan milliveg. Allir þessir möguleikar eru einfaldir í framkvæmd fyrir þann sem samþykkir ferðirnar í bakendanum. Einnig er hægt að stilla sjálfvirkar samþykktir á ferðir þannig að ef hagkvæmnistuðullinn er yfir ákveðinni prósentu þá samþykkjast ferðir sjálfkrafa en sérhvert fyrirtæki stillir það að vild. Allar upplýsingar klárar fyrir skattinn Eva bendir einnig á að fólk sem fær fastan ökutækjastyrk eða eru verktakar sem greiða sér fastan ökutækjastyrk þarf að geta sýnt fram á gögn úr akstursdagbók ef skattyfirvöld óska eftir þeim. Með Skreppa eru allar upplýsingar til staðar ef á þarf að halda. Einnig getur fólk sem er að fá fastan ökutækjastyrk spurt sig hvort styrkurinn sé nægilega hár til að endurspegla notkun einkabílsins. Til dæmis þá er 20.000 kr ökutækjastyrkur aðeins að greiða fyrir 138 km notkun. Ef fólk er að keyra meira en það þá er fólk að verða af skattfrjálsum ökutækjastyrk og og ætti að vera að óska eftir hærri upphæð. Með því að nota Skreppa getur fólk kannað þetta,“ útskýrir Eva. Tilboð á árgjaldi „Við bjóðum nú kynningartilboð sem er aðeins 825 krónur á mánuði sé árið greitt í einni greiðslu að upphæð 9.900 krónur. App store og Play store taka greiðslur í bandarískum dollurum og evrum þannig að upphæðin getur örlítið rokkað eftir gengi dagsins. Kynningarverðið er í boði til 13. mars og aðeins þarf að keyra einkabílinn 5,7 km á mánuði til að greiða fyrir appið á þessu kynningaverði.“
Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Icewear Garn opnar í Kringlunni Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl