Heimili landsins borga fyrir pólitíska vanrækslu Gunnar Einarsson skrifar 4. mars 2026 10:02 Heimili landsins eru ekki að kigna undan náttúruhamförum. Þau eru að kigna undan afleiðingum pólitískra ákvarðana. Húsnæðisvandi, verðbólga og vextir eru ekki óheppileg tilviljun sem bara dundi yfir þjóðina. Þetta er niðurstaða áralangrar vanrækslu, rangrar forgangsröðunar og stjórnvalda sem hafa of lengi talað um stöðugleika á meðan almenningur hefur misst fótfestuna. Verðbólgan segir sitt. Í lok febrúar mældist hún 5,2 prósent, enn langt yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Á sama tíma eru meginvextir bankans 7,25 prósent.Fyrir hagfræðinga eru þetta kannski bara stærðir í töflu. Fyrir heimili landsins þíðir þetta hins vegar dýrari lán, hærri afborganir, hærri leiga og minna svigrúm til að lifa eðlilegu lífi. Það er veruleikinn sem fólk finnur fyrir á hverjum degi. () Þeir sem ráða ferðinni vilja gjarnana tala eins og verðbólga og háir vextir séu bara tæknilegt vandamál sem verði leyst með þolinmæði. En fólk borgar ekki reikninga með þolinmæði. Fólk borgar þá með launum sem duga sífellt skemur. Það er auðvelt að tala um ábyrga efnahagsstjórn úr ráðuneytum og fundarsölum. Það er öllu erfiðara að horfa framan í þann veruleika að venjulegt launafólk,ungt fólk á leigumarkaði, eldri borgarar og öryrkjar eru látin bera kosnaðinn af stefnu sem hefur brugðist. Þegar húsæði er látið lúta fyrst og fremst lögmálum markaðarins í stað þess að vera meðhöndlað sem grunnöryggi verður niðurstaðan fyrirsjáanleg. Verð hækkar. Leiga hækkar. Aðgengi minkar. Og almenningur situr eftir. Síðan bætist verðbólgan ofan á, sem étur upp kaupmáttinn og Seðlabankinn heldur vöxtum háum til að kæla hagkerfið. En það er ekki fjármagnseigandinn sem finnur fyrst fyrir þeirri kælingu.Það er fólkið sem þarf að borga af lánunum, standa í leigu og halda heimili gangandi. Þetta er þess vegna ekki bara efnahagsmál. Þetta er réttlætismál. Samfélag sem sættir sig við að ungt fólk komist hvorki inn á húsnæðismarkað né út úr okurleigu er samfélag sem er að bregðast. Samfélag þar sem vextir og verðbólga éta upp afkomu venjulegs fólks á meðan valdhafar tala um að erfiðir tímar“ gangi yfir er samfélag sem hefur misst siðferðilega átt. Þess vegna skiptir máli að kjósa Flokk fólksins sem talar skýrt um afleiðingarnar fyrir almenning og reynir ekki að afsaka þær. Flokkur sem lítur á húsnæði sem öryggismál, ekki fjárfestingarkost. Flokkur sem skilur að verðbólga er ekki bara prósenta á blaði og að vextir eru ekki bara tæki í hagstjórn, heldur bein árás á lífsgæði fólks þegar þeir halast svona háir. Fyrir mér er það ein af sterkustu ástæðunum til að styðja Flokk fólksins. Ekki vegna þess að flokkurinn hefur talað skýrar en margir aðrir fyrir hönd þeirra sem bera þyngstu byrðarnar. Þegar heimili landsins kikna er ekki nóg að verja kerfið. Þá þarf að verja fólkið. Höfundur er meðlimur í Flokki fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar