Alþjóðleg lög eða ráðleggingar? Marko Medic skrifar 28. febrúar 2026 15:02 Í dag hafa Ísrael og Bandaríkin gert árás á Íran. Þetta er annar mánuðurinn í röð þar sem Bandaríkin ráðast á annað ríki, og enn og aftur er það réttlætt með stórum orðum um „frelsun fólks“. Sagan kennir okkur þó að þegar stórveldi tala um frelsun fylgir oft annað í kjölfarið. Slík orðræða hefur ítrekað verið notuð til að réttlæta innrásir og hernað, með tilvísun í vernd eða frelsun íbúa, og við vitum hvernig það endaði oftar en ekki á síðustu öld. Donald Trump kallar þessar árásir „frelsun fólks“. Við höfum heyrt slíkan tón áður í sögunni. Leiðtogar hafa margoft falið valdbeitingu á bak við hugmyndir um siðferðilega skyldu eða mannúð, en afleiðingarnar hafa oft verið langvarandi óstöðugleiki, mannfall og veikingu alþjóðlegra stofnana. Ef Evrópa leyfir meintum ólöglegum árásum að ganga yfir án viðbragða, hvað segir það þá um stöðu alþjóðalaga? Gilda reglurnar aðeins þegar „rétti“ aðilinn brýtur þær ekki? Ísland og Evrópusambandið hafa áður sýnt að hægt er að beita refsiaðgerðum þegar fullveldi ríkja er brotið. En verða sömu reglur notaðar nú? Ef svarið er nei gæti það haft alvarlegar afleiðingar fyrir alþjóðakerfið. Skortur á viðbrögðum sendir þau skilaboð að valdamikil ríki geti farið sínu fram án raunverulegra afleiðinga og að alþjóðalög séu ekki bindandi reglur heldur einungis ráðleggingar sem gilda þegar það hentar. Slík þróun gæti hvatt önnur ríki til að herma eftir og grafið enn frekar undan þeirri reglu að valdbeiting milli ríkja skuli vera undantekning, ekki norm. Höfundur er nemandi í alþjóðasamskiptum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Í dag hafa Ísrael og Bandaríkin gert árás á Íran. Þetta er annar mánuðurinn í röð þar sem Bandaríkin ráðast á annað ríki, og enn og aftur er það réttlætt með stórum orðum um „frelsun fólks“. Sagan kennir okkur þó að þegar stórveldi tala um frelsun fylgir oft annað í kjölfarið. Slík orðræða hefur ítrekað verið notuð til að réttlæta innrásir og hernað, með tilvísun í vernd eða frelsun íbúa, og við vitum hvernig það endaði oftar en ekki á síðustu öld. Donald Trump kallar þessar árásir „frelsun fólks“. Við höfum heyrt slíkan tón áður í sögunni. Leiðtogar hafa margoft falið valdbeitingu á bak við hugmyndir um siðferðilega skyldu eða mannúð, en afleiðingarnar hafa oft verið langvarandi óstöðugleiki, mannfall og veikingu alþjóðlegra stofnana. Ef Evrópa leyfir meintum ólöglegum árásum að ganga yfir án viðbragða, hvað segir það þá um stöðu alþjóðalaga? Gilda reglurnar aðeins þegar „rétti“ aðilinn brýtur þær ekki? Ísland og Evrópusambandið hafa áður sýnt að hægt er að beita refsiaðgerðum þegar fullveldi ríkja er brotið. En verða sömu reglur notaðar nú? Ef svarið er nei gæti það haft alvarlegar afleiðingar fyrir alþjóðakerfið. Skortur á viðbrögðum sendir þau skilaboð að valdamikil ríki geti farið sínu fram án raunverulegra afleiðinga og að alþjóðalög séu ekki bindandi reglur heldur einungis ráðleggingar sem gilda þegar það hentar. Slík þróun gæti hvatt önnur ríki til að herma eftir og grafið enn frekar undan þeirri reglu að valdbeiting milli ríkja skuli vera undantekning, ekki norm. Höfundur er nemandi í alþjóðasamskiptum.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar