Hvað er planið? Hildur Jónsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 15:15 Árið er 1991 og í áramótskaupinu fer kona að heimsækja eiginmann sinn á sjúkrahús. Hún fær þær fréttir að búið sé að fresta skurðaðgerð vegna niðurskurðar og kemur svo í ljós að eiginmaðurinn er með öðrum sjúkling í rúmi og þarf þar að auki að borga í stöðumæli. Árið er 2025 og í áramótaskaupinu eru sjúkraflutningamenn að reyna að koma með sjúkling á yfirfulla Bráðamóttöku þar sem sjúklingum er troðið í alla króka og kima, þeir enda með að finna fyrir hann pláss á bílastæðinu þar sem hann fær snarlega stöðumælasekt. Á milli þessara sketsa eru 34 ár en efnið það sama. Undanfarnar vikur hefur verið fjallað mikið um yfirfulla Bráðamótttöku Landspítalans og það ömurlega ástand sem sjúklingum og starfsfólki hefur verið boðið uppá undanfarin ár. Ástandið hefur víðtæk áhrif á þjónustu spítalans og á hann erfitt um vik að sinna sínu faglega hlutverki. Mikið hefur verið rætt um hvernig eigi að leysa þennan vanda og talað er um væntanlega opnun fleiri hjúkrunarrýma, biðpláss á sjúkradeild Klíníkurinnar og fleira. Vandinn við þessar annars ágætu lausnir er að þetta eru allt plástrar á svöðusár og þær duga skammt. Vandamálið sem birtist okkur í því ófremdarástandi sem ríkir á Bráðamótttökunni er ekki nýtt, ekki ófyrirséð og leysist ekki með því að það opni nýtt hjúkrunarheimili þó að það lagist tímabundið. Það þarf lausnir strax en líka til lengri tíma. Íslendingum er að fjölga og við erum að eldast, það ætti ekki að koma neinum á óvart að þeir sem fæddust árið 1940 séu nú 85 ára og þurfi eðli málsins samkvæmt meira á heilbrigðisþjónustu að halda núna en fyrir 30 árum. Hér þarf langtímalausnir, framtíðarsýn – ekki bara plástur heldur líka forvarnir og fyrirhyggju. Það þarf að leysa vandann til frambúðar. Það þarf að stórefla alla heimaþjónustu, bæta endurhæfingarúrræði og skoða heimaspítala víðar en á Selfossi. Það þarf að efla heilsugæsluna og gera henni kleift að sinna sínu hlutverki og það þarf að fjölga hjúkrunarrýmum jafnt og þétt í takt við öldrun þjóðarinnar. Allt kostar þetta peninga en ef við höldum áfram að plástra vandamálið sjáum við sennilega sama sketsinn í skaupinu árið 2059. Höfundur er formaður Félags sjúkrahúslækna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar