Kjartan og Marta út, Björn í tíunda og Friðjón í því ellefta Jakob Bjarnar skrifar 27. febrúar 2026 08:55 Atvinnustjórnmálamennirnir Marta og Kjartan víkja af lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, en þær verða haldnar 16. maí. vísir/samsett Mikil leynd ríkir um þann lista sem Sjálfstæðisflokkurinn mun tefla fram í komandi sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík og kynntur verður á morgun. Vísir tekur forskot á sæluna.
Verulegar hreinsanir verða á listanum og ekki eru allir kátir. Uppstillingin var þó í sátt við borgarfulltrúana Björn Gíslason sem mun skipa 10. sætið sem og Friðjón R. Friðjónsson sem verður í 11. sætinu. Sáttir reynsluboltar á bekknum Björn var fyrir síðustu kosningar í 5. sæti á lista og Friðjón var í því sjötta. Allir sitjandi borgarfulltrúarnir gáfu kost á sér til áframhaldandi setu en talsverð krafa hefur verið uppi um endurnýjun. Þeirri kröfu telur kjörnefnd, sem skipar 15 einstaklinga, sig hafa mætt. Í kjörnefnd eru menn spenntir að kynna nýjan lista sem þeir telja sigurstranglegan. Þeir Björn og Friðjón víkja því fyrir nýliðun á lista en eru líklegir á varamannabekkinn. Björn og Friðjón verða eftir sem áður hlið við hlið á lista en neðar. Eftir því sem heimildir herma eru þeir ánægðir með það.vísir/samsett Þeir sem teknir voru til viðtals með það fyrir augum hvort þeir væru ákjósanlegir kandídatar og spurðir sérstaklega út í afstöðu til leiðtogans Hildar Björnsdóttur, þá með það fyrir augum að öruggt sé að hópurinn muni fylkja sér að baki foringjanum. Kjartan og Marta á útleið Þetta þýðir þá að þau sem detta út eru Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir, bæði atvinnustjórnmálamenn og eru þau miskát með þróun mála. Marta er reyndar komin á aldur og vill líklega fara að leggja skóna á hilluna. Eftir því sem Vísir kemst næst var enginn sérstakur ágreiningur um þetta innan kjörnefndarinnar. Það sem hefur flogið fyrir, að Marta njóti sérstakrar verndar Bessíar Jóhannsdóttur, sem er hinn grjótharði formaður kjörnefndar, er úr lausu lofti gripið. Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir er þannig eini borgarfulltrúinn sem hlýtur náð fyrir augum kjörnefndar. Hún var í 2. sæti á lista en mun að öllum líkindum færast neðar. Rúnar Freyr talinn líklegur á lista Sjálfstæðismenn meta það svo, í ljósi skoðanakannana, að þeir muni ná átta mönnum inn eftir komandi sveitarstjórnarkosningar, jafnvel níu ef vel gengur. Eftir því sem Vísir kemst næst skipa þá eftirfarandi listann og mega heita í öruggum sætum auk Hildar og áðurnefndrar Ragnhildar Öldu, þeir Bjarni Guðjónsson knattspyrnukempa og Brynjar Níelsson lögmaður og fyrrverandi þingmaður sem koma nýir inn á lista. Aðrir sem hafa verið nefndir eru Rúnar Freyr Gíslason leikari, Albert Guðmundsson lögmaður og formaður Varðar og Sigrún Ásta Einarsdóttir sem kennd hefur verið við Grafarvoginn. Hávær orðrómur hefur verið uppi um að Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari yrði á lista en þar mun líkega honum og Rúnari Frey verið ruglað saman. Rúnar Freyr hefur hent inn handklæðinu hvað Eurovision varðar en hendir sér, samkvæmt heimildum Vísis, beint í pólitíkina.vísir/lýður Eins og reikningsglöggir lesendur taka eftir vantar tvö nöfn upp á svo listinn megi teljast fullskipaður og geta menn dundað sér við að máta nöfn í púkkið. Eftir því sem Vísir kemst næst lagði kjörnefnd sig í líma við að halda öllum kvótahugmyndum til haga, þá er varða kyn og kynhneigð, og vert að hafa slíkt bak við eyrað.
Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Tengdar fréttir Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Bjarni Guðjónsson hefur sagt upp störfum sem forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS samkvæmt heimildum fréttastofu. Hann hefur verið orðaður við sæti á lista Sjálfstæðismanna í komandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara í maí og er talið að hann muni þar skipa annað sætið. 26. febrúar 2026 08:54 Annað hvort í pólitíkina eða á eftirlaun Brynjar Níelsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur dregið umsókn sína um embætti héraðsdómara til baka. Hann segist ekki frágengið hvað taki við. 17. febrúar 2026 16:00 Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Sjá meira
Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Bjarni Guðjónsson hefur sagt upp störfum sem forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS samkvæmt heimildum fréttastofu. Hann hefur verið orðaður við sæti á lista Sjálfstæðismanna í komandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara í maí og er talið að hann muni þar skipa annað sætið. 26. febrúar 2026 08:54
Annað hvort í pólitíkina eða á eftirlaun Brynjar Níelsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur dregið umsókn sína um embætti héraðsdómara til baka. Hann segist ekki frágengið hvað taki við. 17. febrúar 2026 16:00