Þegar orð verða vopn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar 26. febrúar 2026 15:03 Um launavísitölu, örorkulífeyri og mannlega reisn. Orð geta byggt upp samfélag. En þau geta líka grafið undan því. Undanfarna daga hefur umræða um tengingu á hækkun örorkulífeyris við launavísitölu verið hörð. Það er eðlilegt að deilt sé um opinber fjármál. En það er ekki eðlilegt að í þeirri umræðu gleymist að á bak við tölur eru manneskjur og á bak við hagfræðileg hugtök eru lífsskilyrði. Kjarni málsins er einfaldur: að tryggja að lífeyrir almannatrygginga fylgi launavísitölu og stöðva kjaragliðnun milli lífeyris og launa. Í samfélagi sem byggir á jafnrétti er það lágmarks réttlæti að þeir sem reiða sig á almannatryggingar dragist ekki kerfisbundið aftur úr þegar laun hækka. Réttindi en ekki góðgerðarmál Því vekur það áhyggjur þegar í umræðunni skjóta upp kollinum hugtök á borð við „bætur“ og „bótaþega“. Slíkt orðalag er ekki hlutlaust. Það færir umræðuna frá mannréttindum yfir í miskunnsemi og góðgerðarmál, eins og að hér sé um ölmusu að ræða. Örorkulífeyrir er lögbundinn réttur. Að tala um slíkar greiðslur eins og þær séu ölmusa er að gera mannréttindi að vorkunnsemi. Þessi orðræða er ekki ný. Rannsóknir á fjölmiðlaumræðu um öryrkja hafa sýnt að tortryggni og hugmyndir um byrði eru endurtekið mynstur. Slík framsetning mótar almenningsálit og hefur raunveruleg áhrif á líf fólks. Hún er birtingarmynd ableisma, þeirrar hugmyndafræði að virði fólks ráðist af framleiðslugetu þess og að þeir sem ekki uppfylla normið séu byrði. Hindranir, ekki rangir hvatar Í umræðunni hefur einnig verið talað um „ranga hvata“, eins og fólk velji sér örorku. Sú hugmynd er bæði ósanngjörn og röng. Enginn óskar sér að verða öryrki. Enginn veit að morgni dags hvernig dagurinn endar, slys og alvarleg veikindi gera ekki boð á undan sér. Þvert á móti hefur örorkukerfið um árabil verið þannig uppbyggt að það gerði fólki erfitt fyrir að bæta hag sinn. Skerðingar frá fyrstu krónu og há tekjutenging hafa skapað raunverulegar tekjugildrur. Nýtt kerfi er vissulega skref í rétta átt, en þegar tekjur umfram lágt frítekjumark eru skertar um háa prósentu eru skref út á vinnumarkaðinn enn fjárhagslega áhættusöm. Hópur sem þegar stendur höllum fæti hefur því takmarkað svigrúm til að bjarga sér sjálfur. Þegar fólk reynir að vinna sér inn tekjur er því mætt með skerðingum sem gera þátttöku ótrygga. Það er ekki merki um skort á vilja heldur um kerfi sem enn setur hindranir. Kjaragliðnun hefur andlit Staðreyndirnar eru skýrar. Fjöldi öryrkja býr við mörk fátæktar eða undir þeim. Staðan bitnar á einstaklingum og foreldrum sem þurfa að reiða sig á örorkulífeyrir, ekki síst einhleypum foreldrum, sem standa frammi fyrir því að geta ekki tryggt börnum sínum næringarríkan mat, tómstundir eða haldið upp á mikilvæga viðburði í lífi barna sinna svo sem afmæli og fermingar. Kjaragliðnun er ekki abstrakt hagfræðihugtak. Hún á sér andlit fólksins sem hún hefur áhrif á. Ábyrgð stjórnvalda og fjölmiðla Samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks skuldbinda aðildarríki sig til að vinna gegn fordómum og jaðarsetjandi framsetningu fatlaðs fólks. Sú skylda nær til opinberrar umræðu. Þegar fjölmiðlar, þar á meðal ríkisfjölmiðillinn, endurtaka orðalag sem staðsetur fatlað fólk sem byrði eða mögulegt vandamál, án gagnrýninnar greiningar á forsendunum, taka þeir þátt í orðræðu sem samningurinn kveður á um að vinna skuli gegn. Umræða sem viðheldur tortryggni er ekki hlutlaus. Hún hefur afleiðingar.Við getum deilt um útfærslur og fjármögnun en við ættum ekki að deila um mannréttindi. Orð skapa veruleika. Og veruleikinn sem við veljum að skapa segir meira um okkur en nokkur vísitala.Þetta snýst ekki um kostnað.Þetta snýst um mannlega reisn. Höfunudur er meistaranemi í fötlunarfræði í Háskóla Íslands og starfandi formaður Kjarahóps ÖBÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar