Til hæstvirts mennta- og barnamálaráðherra, Ingu Sæland Hanna Rós Jónasdóttir, Valdís Anna Jónsdóttir og skrifa 25. febrúar 2026 13:00 Það eru rétt um þrír mánuðir síðan að háttvirtur, þá félags- og húsnæðismálaráðherra og núverandi mennta- og barnamálaráðherra, Inga Sæland grét í sal Alþingis, þegar Alþingi samþykkti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Það skýtur því skökku við, að mennta- og barnamálaráðuneytið, undir hennar forystu og ráðuneyti hennar flokks, geti ekki endurnýjað styrk til að halda úti Ævintýrabúðum, sumarbúðum, fyrir börn og unglinga með stuðningsþarfir tengdar ADHD, einhverfu og/eða andlega áskorunum. Einnig hefur erindi frá stuðningsfélaginu Gló, ekki verið svarað af hálfu ráðuneytisins. Gló stuðningsfélag hefur undanfarin 6 ár, rekið Ævintýrabúðir Reykjadals, verkefni sem var sett á laggirnar af frumkvæði stjórnvalda og var ætlað að rjúfa félagslega einangrun þeirra barna með stuðningsþarfir tengdar ADHD, einhverfu og/eða andlegum áskorunum. Í ljós kom að nauðsyn slíkra sumarbúða var gríðarleg og hefur verið mikil aðsókn hvert sumar, en Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur styrkt verkefnið ár frá ári. Um er að ræða hóp barna sem mörg hver hafa ekki fengið að upplifa það að eiga vini, vera samþykkt í hópi jafningja og taka þátt í félagsstarfi sem mætir þér á þínum forsendum. Í 23. grein barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem lögfestur er hér á landi, kemur fram að tryggja eigi að fötluð börn hafi aðgang að og njóti bæði þjálfunar og aðgengi að tómstundum og þannig stuðla að sem mestri félagslegri aðlögun og þroska. Stjórnvöld, eigi að fjarlægja hindranir svo öll börn geti tekið þátt í samfélaginu. Raunveruleiki barna með fatlanir er langt frá því. Árið 2023 var umfjöllun í fjölmiðlum um könnun, sem sýndi að einungis 4% af þeim 3.000 börnum með fatlanir á grunnskólaaldri, stunda reglulega hreyfingu innan íþróttahreyfingarinnar. Samkvæmt, Valdimar Gunnarssyni, verkefnastjóra Allir með - er hlutfallið komið upp í 8,5%, þremur árum síðar. Það er nefnilega ekki svo að börn með fatlanir og aðrar hindranir, vilji ekki stunda hreyfingu eða taka þátt í skipulögðu tómstundastarfi, staðan er einfaldlega sú, að flest íþróttafélög eru illa í stakk búin, til að taka á móti þeim börnum sem þurfa örlítið meiri stuðning. Sú afreksíþróttastefna sem einnig er rekin í flestum félögum, ýtir enn frekar undir þá mismunun og gerir það að verkum að börn með fatlanir og aðrar raskanir, stundi ekki skipulagt íþróttastarf. Sá hópur barna og unglinga sem hafa verið þátttakendur í Ævintýrabúðum Reykjadals, er hópur barna sem oftar en ekki, hefur ekki getað nýtt sér þá afþreyingu sem í boði er yfir sumartímann eða aðrar sumarbúðir. Þótt vilji sé fyrir hendi, eru hvorki fræðsla né nægt fjármagn sett inn í slíka afþreyingu til að aðstoða þá sem starfa við slíkt, til að koma á móts við og mæta þeim börnum sem oftar en ekki uppfylla ekki hið margumrædda box, sem samfélagið miðar út frá. Því það kostar, að gera öllum börnum jafnt undir höfði og að eiga möguleika á að stunda íþrótta- og tómstundastarfi með jafnöldrum sínum. Reynsla okkar, sem mæður barna sem hafa fengið að upplifað töfra Ævintýrabúða Reykjadals er sú að börnin koma heim, með hökuna upp, axlirnar aftur og sjálfstraustið í botni, því skyndilega voru þau orðin hluti af hóp, fengu hrós, voru hvött til að tala um og segja frá sínum áhugamálum og hittu krakka sem höfðu sömu áhugamál. Þeim var mætt, þau áttu rödd og þau skiptu máli. Okkar drengir hlökkuðu til að mæta í sumar í Ævintýrabúðir Reykjadals, og því krefjumst við þess að, hæstvirtur ráðherra, Inga Sæland, gangi í málið, svari Gló stuðningsfélagi og jafni hlut þeirra barna sem stóla á Ævintýrabúðir Reykjadals. Höfundar eru mæður barna með reynslu af Ævintýrabúðum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Ísland orðið of dýrt fyrir venjulegt líf? Valerio Gargiulo Skoðun ESB fyrir elítuna – eða almenning í landinu? Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Þarf Ísland að vera dýrasta land í heimi? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Að skrúfa í sundur flugvél á flugi Eggert Sigurbergsson Skoðun Hvert er virði hins ómetanlega? - Listir varðveita mennskuna. Anna Rún Tryggvadóttir Skoðun Hér kemur staðreynd: það er ekki til neinn Evrópuher Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Auðvaldið, popúlismi, hestaskeifan & ESB Kristján Reykjalín Vigfússon Skoðun Kosningaþynnkan: Gervigreind er svarið við hækkandi álögum Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Nágrannakærleikur í arkitektúr samanber náungakærleikur Halldóra Arnardóttir Skoðun Að skapa heilrænt samfélag einstaklinga frá mörgum löndum jarðar Matthildur Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skæri fyrir örvhenta Þórgunnur Oddsdóttir skrifar Skoðun Þegar þögn laganna verður að banni Bergur Hauksson skrifar Skoðun Ljósmyndin á öld lögvakans Kristján Loftsson skrifar Skoðun Af hverju heldur Gigtarfélagið fjölskylduhátíð? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Er Ísland orðið of dýrt fyrir venjulegt líf? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Kosningaþynnkan: Gervigreind er svarið við hækkandi álögum Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun ESB fyrir elítuna – eða almenning í landinu? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Hvert er virði hins ómetanlega? - Listir varðveita mennskuna. Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að skapa heilrænt samfélag einstaklinga frá mörgum löndum jarðar Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Að skrúfa í sundur flugvél á flugi Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Auðvaldið, popúlismi, hestaskeifan & ESB Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar Skoðun Þarf Ísland að vera dýrasta land í heimi? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hér kemur staðreynd: það er ekki til neinn Evrópuher Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Nágrannakærleikur í arkitektúr samanber náungakærleikur Halldóra Arnardóttir skrifar Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum: ESB sem drifkraftur lausna Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Að kjósa tækifæri, eða hafna því Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun ESB-Pakkinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gat þess ekki að við myndum borga brúsann Hjörtur J. Guðmundsson. skrifar Skoðun Friður á Segulfirði Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Vindorkan – ný fjármálabóla í ríkjum ESB? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Skipulag, ábyrgð og meirihlutamyndun Marta Rut Ólafsdóttir,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Enginn kaus Bjarna eða Brynjar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hvað myndir þú gera við auka milljón á ári? Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Galin skattheimta ríkisstjórnarinnar Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Fyrst upplýsingar og stöðugleiki, svo má kjósa Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Króatar og ávextir ESB-aðildar Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Þegar hlutverkin deyja og sjálfið vaknar Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Dagur og Diljá - dómur er fallinn Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Styrkur í fjárfestingu í sjávarútvegi Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Kosningaþynnkan: Gervigreind er svarið við hækkandi álögum Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvert er virði hins ómetanlega? - Listir varðveita mennskuna. Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Að skapa heilrænt samfélag einstaklinga frá mörgum löndum jarðar Matthildur Björnsdóttir skrifar
Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum: ESB sem drifkraftur lausna Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir skrifar