Coutinho er hættur hjá uppeldisfélaginu: „Það er mjög sárt“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2026 20:00 Philippe Coutinho frá tíma sínum sem aðalstjarna Liverpool. Getty/ Andrew Powell Brasilíska knattspyrnustjarnan Philippe Coutinho tilkynnti að hann sé að yfirgefa Vasco da Gama í heimalandinu.
Fyrrum leikmaður Liverpool var stórstjarna hjá enska úrvalsdeildarfélaginu en allt hefur gengið á afturfótunum síðan hann var keyptur fyrir risaupphæð til Barcelona. Ákvörðunin kemur á Instagram eftir að hans eigin stuðningsmenn púuðu á hann í síðasta leik. Vasco da Gama er einnig uppeldisfélag Coutinhos. Síðustu helgi var púið á þennan 33 ára leikmann af eigin stuðningsmönnum í leiknum gegn Volta Redonda. Samkvæmt breska ríkisútvarpinu fór hann ekki aftur á varamannabekkinn til að fylgjast með restinni af leiknum. Skildi að tími minn hjá félaginu væri á enda „Á því augnabliki, á leiðinni í búningsklefann, fann ég og skildi að tími minn hjá félaginu væri á enda, og ég kom ekki aftur til að forgangsraða andlegri heilsu minni. Það er mjög sárt,“ skrifaði Philippe Coutinho á Instagram á fimmtudag. Coutinho skrifar enn fremur að hann sé andlega þreyttur. „Með þungu hjarta skil ég að tíminn er kominn til að stíga skref til baka og ljúka þessum kafla hjá Vasco,“ skrifaði Coutinho. Þakklátur fyrir allt „Ég er þakklátur fyrir allt sem ég hef upplifað hér. Ég mun bera Vasco með mér að eilífu. Í brjóstinu. Í sögunni. Í lífinu,“ skrifaði Coutinho. Vasco hefur ekki staðfest brotthvarf Coutinhos. Coutinho, sem er 33 ára gamall, hefur spilað 81 leik og skorað 17 mörk fyrir Vasco síðan hann gekk aftur til liðs við félagið árið 2024. Hann hóf feril sinn hjá Vasco áður en hann gekk til liðs við Inter Milan og fór síðar til Liverpool árið 2013. Hann skoraði 54 mörk í 201 leik fyrir „Rauða herinn“ áður en hann gekk til liðs við Barcelona fyrir 142 milljónir punda árið 2018. Hann lék síðar með Bayern München, Aston Villa og Al-Duhail áður en hann sneri aftur til Vasco. Elskar þetta félag „Ég valdi að snúa aftur til Vasco vegna þess að ég elska þetta félag. Ég elska allt sem Vasco táknar í lífi mínu,“ bætti Coutinho við. „Að klæðast þessari treyju var ein mikilvægasta ákvörðun sem ég hef tekið. Og á hverri æfingu, í hverjum leik, gaf ég allt mitt. Alltaf!“ View this post on Instagram A post shared by Philippe Coutinho (@phil.coutinho)
Brasilía Fótbolti Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Sjá meira