„Helvítið“ breyttist í geggjaðan Austurríkisfíling Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 20. febrúar 2026 17:54 Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Stemningunni á skíðasvæðinu í Bláfjöllum í dag var lýst sem geggjuðum Austurríkisfíling eftir að eins og hálfs tíma töf varð vegna bilunar á stólalyftunni. Veðurfræðingur spáir allhvössu veðri á morgun en rekstrarstjóri Bláfjalla gefur lítið fyrir veðurspár og býst við dúndurstemningu í fjallinu um helgina.
Hljóðið var gott í Einari Bjarnasyni rekstrarstjóra Bláfjalla þegar þáttastjórnendur Reykjavík síðdegis slógu á þráðinn í dag. Drottningalyftan opnaði í fyrsta sinn í vetur en skíðakappar hafa beðið í ofvæni eftir fyrsta opnunardegi frá upphafi vetrar. Vetrarfrí eru í mörgum grunnskólum landsins og því voru margir sem nýttu tækifærið og skelltu sér fjallið „Þetta er bara alveg geggjað strákar. Það er svona Austurríkisfílingur. En við værum samt til í að hafa aðeins fleiri brekkur.“ Allir orðnir þyrstir Eingöngu er framleiddur snjór í drottningunni og barnabrekkunni en þar fyrir utan er auðn og grjót, að sögn Einars. „Við værum bara einfaldlega ekki með snjókorn hérna ef við værum ekki með snjókerfi.“ Hann segir frá því að rétt fyrir opnun í hádeginu hafi komið upp vesen á drottningunni og einn og hálfan tíma tekið að koma henni í gang. „En nú er þetta smurt og þetta er geggjað.“ Og verður geggjað um helgina? „Æj, ég sá nú einhvern vind í spánni en eigum við ekki bara að segja að hann sé ekkert að koma,“ segir Einar. „Ég á von á mjög mörgum, það eru allir orðnir þyrstir.“ Fréttamaður verður í beinni útsendingu frá skíðasvæðinu í Bláfjöllum í kvöldfréttum Sýnar klukkan hálf sjö. Breytinga að vænta Þorsteinn Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, ræddi sömuleiðis við þáttastjórnendur um veðrið og það óvenjulega langa úrkomulausa skeið sem nú stendur yfir á höfuðborgarsvæðinu. „Það er djúp lægð langt suðvestur í hafi og hún nálgast aðeins núna í nótt og á morgun. Það verður reyndar fínasta veður áfram í kvöld, það lægir frekar og dregur úr éljunum fyrir norðan og austan og helst þannig áfram fínt í fyrramálið en síðan fer heldur að bæta í vind úr austri. Á morgun, þegar lægðardragið hérna djúpa nálgast, og annað kvöld verður orðið allhvasst eða hvasst hérna syðst,“ segir Þorsteinn. Hann bendir á að vanalega sé veðrið breytilegt á þessum árstíma en síðan í janúar hefur langvarandi austanátt verið yfir landinu. „Það er mjög óvanalegt að þetta haldi.“ Þó sé breytinga að vænta eftir helgi. „Strax á mánudaginn jafnvel, kemur smá lægð upp að Vesturlandi og það gæti snjóað víða vestantil seinni partinn á mánudag. Og svo áfram er búist við lægðagangi þegar líður á vikuna og jafnvel éljum eða snjókomu í flestum landshlutum,“ segir Þorsteinn.
Skíðasvæði Veður Reykjavík síðdegis Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira