„Áratuga afturför“ og frost í greininni Tómas Arnar Þorláksson skrifar 19. febrúar 2026 22:44 Hrönn Sveinsdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka kvikmyndaleikstjóra og framkvæmdastjóri Bíó Paradís. vísir/vilhelm Áratuga afturför í íslenskri kvikmyndagerð og flótti hjá reynsluboltum úr greininni. Svona lýsa formenn fagfélaga í kvikmyndagerð ástandinu í bransanum en aðeins er reiknað með tveimur íslenskum kvikmyndum í fullri lengd á þessu ári og færri erlendum verkefnum en áður.
Flótti og frost. Tvö orð sem heyrast gjarnan þegar rætt er við kvikmyndagerðarfólk á Íslandi um stöðuna í bransanum. Verulega hefur dregist saman í íslenskri kvikmyndagerð ef litið er til útgáfu leikinna kvikmynda sem voru styrktar af Kvikmyndasjóði. Þrjár kvikmyndir komu út á síðasta ári og ekki nema tvær á þessu ári. Staðan mjög slæm og synd að kasta frá sér góðu gengi Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka kvikmyndaleikstjóra, segir stöðuna mjög slæma. Neyðarástand ríki í kvikmyndageiranum. „Við erum að horfa upp á áratuga afturför í íslenskri kvikmyndagerð. Þetta er að gerast á þeim tíma sem að við höfum aldrei haft meiri þörf fyrir efni á íslensku. Við vorum farin að framleiða sjö til níu myndir í fullri lengd og núna er þetta komið niður í tvær í ár. Það hefur alltaf verið gert samkomulag við kvikmyndagerðarfólk til fjögurra ára síðan 1990. Þetta var samkomulag sem átti að halda á milli ríkisstjórna. Við erum búin að vera samningslaus síðan 2020. Það er ekkert samkomulag við kvikmyndagerðarfólk og á sama tíma er sjóðurinn skorinn linnulaust niður.“ Hún gagnrýnir það harðlega að Kvikmyndasjóður hafi dregist saman á undanförnum árum. Ef ekki verði brugðist við muni íslenskum kvikmyndum fækka enn frekar. „Við höfum ekki fengið nein vilyrði fyrir því að sjóðurinn verði stækkaður. Eins og stendur, stendur hann bara undir brotabroti af því sem við ættum að vera að framleiða. Það sem okkar geiri krefst svo mikils er fyrirsjáanleiki. Við verðum að vita hvað er fram undan, við getum ekki verið upp og niður. Hver kvikmynd tekur mörg ár að framleiða.“ Hún minnir á að tíu ára stefna var sett um kvikmyndagerð árið 2020. Stefnt hafi verið að því að hækka framlög til Kvikmyndasjóðs árlega. Það hafi ekki haldið heldur þvert á móti. Erlend verkefni hér á landi og nýlegt nám í kvikmyndagerð hafi skilað góðum árangri. „Við erum búin að fjárfesta þvílíkt í þessu. Við erum orðin mjög góð í þessu og síðan horfum við á aðrar þjóðir eins og Noreg taka langt fram úr okkur því þeir hafa fjárfest í sinni kvikmyndagerð. Við höfum alla burði til að gera það sama en að skera niður núna, þá ertu bara að kasta öllu frá þér fyrir örlitla peninga í rauninni,“ segir hún og bætir við að hún hafi áhyggjur af því að íslensk verkefni verði framleidd á ensku ef ekkert breytist. Tapast þekking með flótta úr greininni Dæmi séu um að reynsluboltar flýi greinina. Steingrímur Dúi Másson, formaður félags kvikmyndagerðarmanna, segir það áhyggjuefni. „Það er alls ekki gott mál því það þýðir að það er ákveðinn flótti úr greininni og það tapast þekking. Þetta er mjög mikilvæg þekking sem glatast við það.“ Steingrímur Dúi Másson, kvikmyndagerðarmaður og formaður Félags kvikmyndagerðarmanna.vísir/lýður Á síðustu árum hafa stór erlend verkefni verið tekin upp hér á landi og skaffað fjölda fólks vinnu. Samkvæmt heimildum fréttastofu er ekkert erlent verkefni búið að staðfesta komu sína hingað til lands fyrir fyrri hluta árs og útlitið tvísýnt með seinni hlutann. „Okkur finnst vera of mikil óvissa núna, sérstaklega í sambandi við endurgreiðslurnar. Við þurfum að fá óvissuna þar út af borðinu,“ segir Steingrímur Dúi.
Kvikmyndagerð á Íslandi Menning Íslensk tunga Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Þrjár íslenskar kvikmyndir hlutu verðlaun í Þýskalandi Leikstjórinn Rúnar Rúnarsson og kvikmyndaframleiðandinn Heather Millard voru verðlaunuð á Norrænum kvikmyndadögum í þýsku borginni Lübeck fyrir kvikmyndina Ljósbrot og stuttmyndina O (Hringur). 10. nóvember 2024 07:54 Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Fleiri fréttir Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan „Tölum svolítið bara um það sem við sjáum á samfélagsmiðlum í bekknum“ Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Sjá meira
Þrjár íslenskar kvikmyndir hlutu verðlaun í Þýskalandi Leikstjórinn Rúnar Rúnarsson og kvikmyndaframleiðandinn Heather Millard voru verðlaunuð á Norrænum kvikmyndadögum í þýsku borginni Lübeck fyrir kvikmyndina Ljósbrot og stuttmyndina O (Hringur). 10. nóvember 2024 07:54