Skert þjónusta sem kostar meira. Íslenska leiðin… Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar 18. febrúar 2026 14:31 Undanfarna mánuði hef ég kynnst heilbrigðiskerfinu okkar töluvert betur en ég hefði kosið að gera í lífinu. Fyrir tæpu ári greindist ég með erfitt krabbamein, fór í gegnum lyfja- og geislameðferðir í Reykjavík og svo var meinið skorið í burtu í tólf tíma skurðaðgerð á Karolinska í Svíþjóð. Um var að ræða sérhæfða aðgerð þar sem meltingarveginum var breytt til frambúðar. Fólk lendir í ýmsu og þetta féll mér í skaut að takast á við. Margir sjá það verra. Í kjölfarið á þessu hef ég verið í endurhæfingu og vikulegum aðgerðum til að halda fæðuvegi opnum, en þær aðgerðir voru framkvæmdar á Sjúkrahúsinu á Akureyri þar til fyrir skemmstu. Nú flýg ég til Reykjavíkur einu sinni í viku til að fá þetta framkvæmt, þar sem sérfræðingurinn á SAk sagði upp í kjölfar þess að ferliverkasamningum (“gerviverktöku”, eins og fjármálaráðuneytið kaus að lýsa fyrirkomulaginu við sérgreinalækna á SAk) var sagt upp. Það grátlega er að læknirinn sem hefur framkvæmt aðgerðina færði starfsemi sína yfir á Læknastofur Akureyrar og getur ekki lengur sinnt aðgerðum á SAk eftir uppsögnina. Allir sjúklingar á SAk sem þurfa þjónustu meltingarlækna þurfa því nú að fara til Landspítala. Góðu fréttirnar eru þó þær að á báðum stöðum mætir manni yndislegt starfsfólk sem er að vinna sína vinnu af miklum vanefnum við erfiðar aðstæður. Eftir að þjónustunni var hætt á SAk (sem er lögbundið vara-sjúkrahús LSH og sérgreina – og kennslusjúkrahús) fór ég kynna mér betur hvað fælist í þessum nýja veruleika. Fljótlega hnaut ég um greinar sem formaður Læknafélags Íslands, Steinunn Þórðardóttir, hafði skrifað og lýsti ómöguleguástandi og einnig grein eftir Friðbjörn Sigurðsson, sem talaði um “djúpstæðakrísu” Ástandið virðist bara hafa versnað síðan þessar greinar voru skrifaðar á síðasta ári og enn djúpstæðari “krísa” sé uppi og staðan enn meira “ómöguleg” (báðar greinar í fyrstu athugasemd). Einnig varð á vegi mínum skýrsla sem tveir læknar á SAk, áðurnefndur Friðbjörn og Guðjón Kristjánsson, skrifuðu til þáverandi heilbrigðisráðherra í nóvember 2024. Niðurstaða skýrslunnar var sú að unnt væri að spara ríkissjóði umtalsverða fjármuni með því að skerða ekki sérfræðilæknaþjónustu á SAk. Gæti virkilega borgað sig að Sjúkratryggingar (ríkið/skattreiðendur) greiddu fyrir 25-30 þúsund ferðir frá Akureyri til Reykjavíkur til að sækja þangað læknisþjónustu sem í mörgum tilvikum væri hægt að framkvæma á SAk? Samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands voru greiddar að jafnaði 48.000 krónur vegna ferðakostnaðar alls 24.524 ferða, eða alls ríflega 1.2 milljarður árið 2024. Ótalinn er kostnaður vegna aðstandenda, uppihalds, vinnutaps, umhverfisáhrifa etc etc.Skert þjónusta sem kostar meira er ekki góður “díll” fyrir neinn. Þótt hagfræðinga greini á, eins og dæmin sanna undanfarið, er óumdeilt að þjóðhagslegur kostnaður er margfaldur þeirrar upphæðar sem “bara” fellur til vegna ferða til LSH eða á einkastofur í Reykjavík. Óhætt er að reikna með að raun-kostnaðurinn nemi á bilinu 2.8 – 4.0 milljarðar árlega og því síst oftalinn í skýrslu læknanna. Með hverri ferð sem að óþörfu er farin suður tapar samfélagið meiru. Kostnaður vex að óþörfu og Sjúkrahúsið á Akureyri holast að innan. Það hættir enda að standa undir nafni sem vara-sjúkrahús þjóðarinnar. Uppeldis- og menntastofnun heilbrigðisstarfsfólks, eins og lögbundnu hlutverki þess er lýst. Áætlanir um nýbyggingu við SAk virðast skrítnar í ljósi þess að sífellt meir er hoggið af grunnþjónustu spítalans. Að afleggja þjónustu tekur enga stund, en að byggja upp viðeigandi þjónustu kostar tíma, peninga, blóð, svita og tár.Í fréttum undanfarna daga höfum við horft upp á enn einn hryggðarmarsinn í málefnum LSH, á meðan það er helst að frétta að norðan að forstjórinn er hættur og spítalinn keyrir á verulega skertum afköstum, faglega og fjárhagslega. Það má skiljast að Landspítalinn hafi síst svigrúm til að taka við auknum fjölda sjúklinga og því vart til að bæta hinn margumtalaða fráflæðisvanda, að ferja þangað sífellt fleiri sjúklinga af landsbyggðinni sem undir eðlilegum kringumstæðum væri hægt að sinna á heimaslóð. Starfsfólk SAk, stjórnendur og síðan íbúar upptökusvæðis spítalans eru ekki í fimm mínútna göngufjarlægð frá ráðuneytinu. Það er ekki í kallfæri í snöggan bolla til að ræða aðsteðjandi verkefni eða vandamál við ráðherra heilbrigðismála eða manninn með veskið, fjármálaráðherra. Getur verið að niðurskurðarkrafan sé einfaldari á fólk sem þú hittir ekki í Bónus eða á sinfóníutónleikum í Hörpu? “Out of sight – out of mind” myndu Bretar orða það… Akureyri, höfuðborg raunhagkerfisins, getur ekki unað því að sífellt sé mulið undan stoðum hennar með líknandi meðferð á öllum sviðum opinberrar innviðauppbyggingar. Það er sama hvort horft er til sjúkrahússins, alþjóðaflugvallarins eða háskólans, allt eru þetta nútímainnviðir sem gera Akureyri og landsbyggðina að ákjósanlegri valkosti fyrir fjölskyldur og fyrirtæki. Allt eru þetta opinberir innviðir sem bera vitni slæmri meðferð opinbers fjár, þar sem aurinn er sparaður á meðan krónunnni er kastað. Höfundur er viðskiptafræðingur, flugmaður og áhugamaður um bætt mannlíf um land allt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir skrifar Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Sjá meira
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun