Saka verður sá launahæsti Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. febrúar 2026 20:33 Stjörnustrákurinn Saka verður sá launahæsti hjá Arsenal. Alex Pantling/Getty Images Bukayo Saka hefur framlengt samning sinn við Arsenal, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, og verður launahæsti leikmaður félagsins.
Saka gerði munnlegt samkomulag við Arsenal í síðasta mánuði og skrifaði síðan í dag undir nýjan samning sem gildir til ársins 2031. Þessi 24 ára leikmaður mun því verja sínum bestu árum á Emirates. BBC greinir frá því að nýi samningurinn geri hann að launahæsta leikmanni félagsins. Þar segir að Saka muni fá rúmlega 300 þúsund pund á viku, sem er 20 þúsund pundum meira en Kai Haverz fær í hverri viku. Bernardo Silva og Bruno Fernandes eru í sama launaflokki og Saka en Virgil Van Dijk og Casemiro eru skör ofar, með 350 þúsund pund á viku. Mohamed Salah er síðan í öðru sæti listans með 400 þúsund pund á viku en enginn kemst nálægt Erling Haaland, sem er með 525 þúsund pund á viku. Arsenal er í toppsæti ensku deildarinnar og í baráttu um hina þrjá bikarana; Meistaradeildina, FA bikarinn og enska bikarinn. Félagið hefur nýlega framlengt samninga bæði lykil- og efnilegra leikmanna á borð við William Saliba, Gabriel Magalhaes, Ethan Nwaneri og Myles Lewis-Skelly. Saka spilaði sinn fyrsta leik fyrir Arsenal aðeins sautján ára gamall og hefur komið við sögu í 217 úrvalsdeildarleikjum fyrir félagið. Á þessu tímabili hefur hann spilað 33 leiki í öllum keppnum og skorað 7 mörk.
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ Íslenski boltinn Grindavík - Stjarnan | Fyrsti titillinn í tólf ár? Körfubolti Fann ekkert atvinnumannalið í Þorlákshöfn: „Þeir hefðu getað tapað svona 30-0“ Fótbolti „Sé ekki að almannahagsmunir séu ríkari hér en í Danmörku eða Svíþjóð“ Sport Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Íslenski boltinn David James þjálfar markverði Vals Íslenski boltinn Breytti aðeins til og bætti heimsmetið í fimmtánda sinn Sport Ótrúleg sigurganga Klæbo endaði með árekstri og spítalaferð Sport „Allir hjá Manchester United elska hann“ Enski boltinn Glæsimark og ískaldur Albert tryggðu sigur Fótbolti Fleiri fréttir Fær lengra leikbann og er til rannsóknar fyrir að hrinda boltastráki Sjáðu sniðugustu hornspyrnur tímabilsins Moyes varði Arteta: Efast frekar um þá sem gagnrýna Arsenal „Allir hjá Manchester United elska hann“ Einkaviðtal við Cody Gakpo: „Það eru miklar væntingar frá öllum“ Kvaddi Chelsea með tárin í augunum Hörmuleg vika fyrir ensku liðin í Meistaradeildinni Þakklátur eftir drauminn sem breyttist í martröð Sagði 35 sinnum fyrirgefðu við boltastrákinn Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Segja að Tudor stýri Tottenham á móti Liverpool Peter Schmeichel: „Hann rústaði ferli hans“ „Mér finnst Salah vera áhyggjuefni“ Scholes bað Carrick afsökunar Rosaleg dagskrá Man. City að hefjast Barton ákærður fyrir líkamsárás Tudor segir að fallslagurinn sé mikilvægari en Meistaradeildin Segir ógeðslegt að gera grín að vítaklúðrum West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni City og Liverpool mætast í átta liða úrslitunum Fékk rúmlega þrettán milljóna króna sekt fyrir ummæli um dómara Liverpool og Man. Utd kvarta yfir hryllingi frá Grok Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Leeds í átta liða úrslit bikarsins í fyrsta sinn síðan 2003 Stuðningsmaður Newcastle tryggði óvæntasta sigur helgarinnar gegn Sunderland Guardiola ætlar að skella sér í frí „Á þriggja daga fresti líður mér öðruvísi“ Marmoush skaut City áfram í bikarnum í fjarveru Haaland Garnacho í aðalhlutverki í sigri á Hollywood-liðinu Skrifar undir nýjan samning við Liverpool Sjá meira