Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. febrúar 2026 06:41 Leitað að Lúðvík í kjölfar þess að hann hvarf við störf í Hópshverfi 10. janúar 2024. Vísir „Við fögnum þessu. Við teljum það ákaflega mikilvægt að grafið verði eftir Lúðvík. Með því fær fjölskyldan mögulega einhverja lúkningu með því að geta jarðað Lúlla. Það er líka alveg öruggt að það vill enginn Grindvíkingur að Lúlli liggi í sprungu í Grindavík,“ segir Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll í sprungu í Grindavík 10. janúar 2024.
Morgunblaðið greinir frá því að dómsmálaráðuneytið hafi samþykkt að greiða fyrir mat á því hvort hægt sé að ná jarðneskum leifum Lúðvíks upp úr sprungunni. Samkvæmt blaðinu hefur sést í þjöppuna sem Lúðvík var að vinna á ofan í sprungunni og er hann talinn hvíla nálægt henni. Ráðuneytið hefur falið Grindavíkurnefnd að finna verkfræðistofu til að reikna burðarþol og fleira áður en ráðist verður í framkvæmdir. „Við erum að vinna eftir aðgerða áætlun við sprungufyllingar í bænum. Þannig er mál með vexti að sprungan þar sem hann fer niður er að komast á framkvæmdastig. Við viljum hins vegar ekki fara í hana fyrr en búið er að gera úrslitatilraun til að kanna hvort hann finnist,“ hefur Morgunblaðið eftir Árna Þór Sigurðssyni, formanni nefndarinnar. Samkvæmt dómsmálaráðuneytinu verður það lögreglustjórans á Suðurnesjum að ákveða hvort ráðist verði í leit og björgun þegar matið liggur fyrir. Fimm eru með réttarstöðu grunaðs í tengslum við andlát Lúðvíks, samkvæmt Morgunblaðinu.
Grindavík Féll í sprungu í Grindavík Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira