Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Lóla 17. febrúar 2026 11:31 Sænski stjörnukokkurinn Adam Dahlberg (t.v.) og Sigurður Laufdal, matreiðslumaður og eigandi Lólu voru mótherjar í matreiðslukeppninni Bocuse d’or árin 2012 og 2013. Nú sameina þeir krafta sína á veitingastaðnum dagana 25.-28. febrúar þar sem Adam ætlar að kynna matargerð sína frá veitingastaðnum Solen brasserie sem leggur mikla áherslu á ferskt hráefni og afslappaða matargerð. Veitingastaðurinn Lóla í miðborg Reykjavíkur heldur áfram að vekja athygli en sænski stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir í eldhúsið dagana 25. febrúar til 28. febrúar meðan matarhátíðin Food & Fun stendur yfir.
Adam er þekktur matreiðslumaður í Svíþjóð og rak á tímabili þrjá veitingastaði, þar á meðal Michelin-stjörnu veitingastaðinn Adam/Albin. Hann heimsækir Lólu til að kynna matargerð sína frá veitingastaðnum Solen brasserie sem leggur mikla áherslu á ferskt hráefni og afslappaða matargerð. Veitingastaðurinn Solen brasserie er í Stokkhólmi. Mótherjar sameinast í eldhúsinu „Við erum ótrúlega spennt að taka á móti Adam. Hann er kokkur sem ég hef fylgst með lengi og það verður virkilega gaman að sjá nálgun hans og standa vaktina með honum í eldhúsinu,“ segir Sigurður Laufdal, matreiðslumaður og eigandi Lólu. Lóla og Solen bjóða upp á fjölmarga ljúffenga rétti. „Við kepptum á móti hvor öðrum í matreiðslukeppninni Bocuse d’or árin 2012 og 2013, ég fyrir Ísland og hann fyrir Svíþjóð, en þessa helgi vinnum við saman,” segir Sigurður kankvís. „Þetta er skemmtilegur viðburður sem er hluti af Food & Fun þar sem við ætlum að gera eitthvað sérstakt úr þessu samstarfi. Við viljum halda áfram að þróa Lólu sem stað þar sem hlutirnir gerast og þar sem gestir fá upplifun sem er aðeins öðruvísi.“ Barinn á Lólu er stórglæsilegur og það sama má segja um önnur rými. Skemmtileg stemning fram undan Áður en Adam mætir til leiks verður einnig líf og fjör á Lólu um konudagshelgina 20. - 21. febrúar þar sem staðurinn ætlar að setja upp sérstaka stemningu og dekra við gesti. „Við ætlum að byrja að hita upp fyrir komuna hans með skemmtilegu konsepti um konudagshelgina. Lóla er staður þar sem fólk kemur saman, nýtur sín og upplifir góða þjónustu og mat og næstu vikur verða engin undantekning,“ bætir Sigurður við og mælir með að fólk tryggi sér borð sem fyrst.
Veitingastaðir Food and Fun Mest lesið Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Lífið Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Lífið Chappell Roan elskar Fischersund Tíska og hönnun Stjörnulífið: Á rassinum með ref Lífið Ingibjörg Sólrún steig trylltan dans Lífið „Þrjátíu og eitt ár síðan stuðboltinn Bakkus sagði mér upp“ Lífið Skotið á hús Rihönnu í Beverly Hills Lífið Sjóðandi hiti á klúbbnum á föstudag Lífið Þolir ekki þegar kærastinn talar um tilfinningar Lífið Þriggja daga leikhús fáránleikans Lífið Fleiri fréttir Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira