Rósa Guðbjartsdóttir alþ.maður um mannfjandsamlegar stefnur Árni Stefán Árnason skrifar 13. febrúar 2026 20:30 Í síðasta pistli mínum ritaði ég um uggvænlegt ástand bráðamóttökunnar í Fossvogi. Einu sinni var það svo að í Hafnarfirði var rekið, af mörgum talið, besta sjúkrahús landsins. St. Jósefsspítali byggður af St. Jósefssnunnum. Aldur, launalausar eilífðarvaktir framkölluðu með tímanum þreytu hjá systrunum. Bestu læknar landsins störfuðu þar og lýðheilsuárangur rómaður. Allt landið saknaði St. Jó. Systurnar seldu spítalann til ríkisins með þeirri kvöð að yrði hann tekin aftur í notkun þá var það skilyrði að þar yrði stundaður áfram rekstur sjúkrahúss. Hann stóð auður í langan tíma á meðan ófremdarástand var vegna skorts á legurými, alveg eins og nú. Íhaldinu datt ekki í hug að opna hann þrátt fyrir háværar kröfur kjósenda. Það var mannfjandleg stefna. Þessa sögu þekki ég mjög vel. Faðir minn Árni Gunnlaugsson var um árabil í stjórn spítalans og barðist manna grimmast fyrir opnun spítalans á ný á meðan hann var í eigu ríkisins. Rósa Guðbjartsdóttir mærði sjálfa sig mjög þegar bærinn náði kaupsamningi um endurheimt spítalans en sveik hins vegar nunnurnar og úthlutaði rými hans til einkaaðila. Það er akkúrat í takt við stefnu Sjálfstæðisflokksins. Í nýlegri grein hér heggur Rósa í ríkisstjórnina fyrir að sinna ekki bráðamóttökunni. Högg fyrir neðan beltisstað af hennar hálfu en efnislega sanngjarnt. Sjálfstæðisflokkurinn hafði áratugi til að laga þetta ástand. Kom engu í verk. Sjálfstæðisflokkurinn hafði áratugi til að fylgja eftir kvöðum í kaupsamningi við nunnurnar. Hann sveik það allt en svikin voru mest hjá Rósu. Hún var bæjarstjóri við nýja yfirtöku og hefði léttilega geta opnað eina stærstu bráðamóttöku á Norðurlöndunum. Það datt henni ekki í hug, það var ekki í anda íhaldsmanna að útdeila til sinna minnstu bræðra og systra, sjúkra. Því blæs ég á villandi skrif Rósu Guðbjartsdóttur þingmanns - Mannfjandleg stefna á bráðamóttöku - hún sjálf stundaði mannfjandlega stefnu að opna ekki sjúkrahúsið að nýju við Suðurgötu í Hafnarfirði. Höfundur er dýraverndarlögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Stefán Árnason Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Í síðasta pistli mínum ritaði ég um uggvænlegt ástand bráðamóttökunnar í Fossvogi. Einu sinni var það svo að í Hafnarfirði var rekið, af mörgum talið, besta sjúkrahús landsins. St. Jósefsspítali byggður af St. Jósefssnunnum. Aldur, launalausar eilífðarvaktir framkölluðu með tímanum þreytu hjá systrunum. Bestu læknar landsins störfuðu þar og lýðheilsuárangur rómaður. Allt landið saknaði St. Jó. Systurnar seldu spítalann til ríkisins með þeirri kvöð að yrði hann tekin aftur í notkun þá var það skilyrði að þar yrði stundaður áfram rekstur sjúkrahúss. Hann stóð auður í langan tíma á meðan ófremdarástand var vegna skorts á legurými, alveg eins og nú. Íhaldinu datt ekki í hug að opna hann þrátt fyrir háværar kröfur kjósenda. Það var mannfjandleg stefna. Þessa sögu þekki ég mjög vel. Faðir minn Árni Gunnlaugsson var um árabil í stjórn spítalans og barðist manna grimmast fyrir opnun spítalans á ný á meðan hann var í eigu ríkisins. Rósa Guðbjartsdóttir mærði sjálfa sig mjög þegar bærinn náði kaupsamningi um endurheimt spítalans en sveik hins vegar nunnurnar og úthlutaði rými hans til einkaaðila. Það er akkúrat í takt við stefnu Sjálfstæðisflokksins. Í nýlegri grein hér heggur Rósa í ríkisstjórnina fyrir að sinna ekki bráðamóttökunni. Högg fyrir neðan beltisstað af hennar hálfu en efnislega sanngjarnt. Sjálfstæðisflokkurinn hafði áratugi til að laga þetta ástand. Kom engu í verk. Sjálfstæðisflokkurinn hafði áratugi til að fylgja eftir kvöðum í kaupsamningi við nunnurnar. Hann sveik það allt en svikin voru mest hjá Rósu. Hún var bæjarstjóri við nýja yfirtöku og hefði léttilega geta opnað eina stærstu bráðamóttöku á Norðurlöndunum. Það datt henni ekki í hug, það var ekki í anda íhaldsmanna að útdeila til sinna minnstu bræðra og systra, sjúkra. Því blæs ég á villandi skrif Rósu Guðbjartsdóttur þingmanns - Mannfjandleg stefna á bráðamóttöku - hún sjálf stundaði mannfjandlega stefnu að opna ekki sjúkrahúsið að nýju við Suðurgötu í Hafnarfirði. Höfundur er dýraverndarlögfræðingur.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar