Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Magnús Jochum Pálsson skrifar 13. febrúar 2026 14:31 Nicolas Cage er mikill teiknimyndasögukall og mun leika grímuklæddu ofurhetjuna Köngulónna. Amazon/Getty Nicolas Cage mun leika einkaspæjarann Ben Reilly sem klæðir sig upp sem grímuklædda hetjan Köngulóin og tekst á við drauga fortíðar í sjónvarpsþáttunum Spider-Noir á Amazon Prime.
Serían byggir á Marvel-teiknimyndasögunni „Spider-Man Noir“ sem segir frá útgáfu af köngulóarmanninum í noir-spæjaramyndastíl. Nicolas Cage talsetti sama karakter í teiknimyndinni Spider-Man: Into the Spider-Verse (2018) en serían verður ótengd þeirri mynd. Þættirnir gerast í New York-borg á fjórða áratug síðustu aldar þar sem spæjarinn Ben Reilly, eitt sinn grímuklædda ofurhetjan Köngulóin, þarf að klæða sig í grímuna á ný. Auk Cage fara leikararnir Brendan Gleeson, Lamorne Morris og Li Jun Li með hlutverk í þáttunum. Harry Bradbeer, sem hefur áður leikstýrt Fleabag (2016-19), Killing Eve (2018) og Enola Holmes (2020), verður leikstjóri fyrstu tveggja þáttanna og jafnframt yfirframleiðandi. Auk hans verða Oren Uziel og Steve Lightfoot í hlutverki „showrunner-a“ þáttanna. Þættirnir verða átta talsins og verður serían frumsýnd á MGM+ í Bandaríkjunum þann 25. maí 2026 og svo koma allir þættirnir út í einu á Prime tveimur dögum síðar. Hægt verður að horfa á seríuna bæði í lit og svarthvítu í Noir-stíl en jafnframt hafa komið tvær ólíkar stiklur út. Þetta er ekki fyrsta ofurhetjan sem Cage leikur. Hann lék mótorhjólakappann Johnny Blaze í myndunum Ghost Rider (2007) og Ghost Rider: Spirit of Vengeance (2012) og lék ofurmennið í litlu hlutverki í myndinni Flash (2023). Sjá einnig: Fyrsta Súperman-blaðið endurheimt Nicolas Cage er sjálfur forfallinn safnari og komst það í heimsfréttirnar 2011 þegar hann endurheimti fyrsta tölublaðið af Ofurmenninu eftir að því hafði verið stolið af honum áratugi fyrr.
Hollywood Bíó og sjónvarp Bandaríkin Amazon Mest lesið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið Peabo Bryson er látinn Tónlist Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Lífið Fleiri fréttir Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira