Niðurskurðarkrafa Landspítalans fer í stríðsrekstur Sveinn Hjörtur Guðfinnsson skrifar 13. febrúar 2026 09:17 Í kvöldfréttum var augljóst að heyra neyðarkall forstjóra og starfsmanna Landspítalans vegna skelfilegs ástands sem er á bráðamóttökunni. Við heyrum fréttir af því að bílageymsla spítalans í Fossvogi sé notuð sem legurými, gangar eru fullir af bekkjum og stólum til að koma fólki fyrir og yfirkeyrt starfsfólkið gerir sitt allra besta og gera það sem telst ómanneskjulegt í eðlilegu vinnuumhverfi. Ofan á allt þetta er farið fram á 5 milljarða niðurskurðakröfu á Landspítalann en það ástand mun kalla á enn meiri hættu á mistökum og líklega dauðsföllum því álagið er nú þegar hræðilegt á allt starfsfólk og sjúklinga. Fyrir nokkrum árum var núverandi heilbrigðisráðherra landlæknir. Hún var óspar á að láta vita um skoðun sína á skelfilegu ástandi Landspítalans og bráðamóttökunnar og vildi aðgerðir strax. Nú er hún ráðherra og henni finnst í dag ekki eins ákallandi að leysa vandann í Fossvoginum og hún er hörð með fimm milljarða niðurskurðinn á stjórn spítalans. Það mátti sjá þjakaðan forstjórann í kvöldfréttunum reyna að tala ekki niður til ráðherra með von um að fá ekki reisupassann eða skammir. En þriðja fréttin var það sem vakti undrun mína en það var fundur utanríkisráðherra Íslands á Natófundi og þar ákvað hún að verja einum milljarði 1.000.000.000 milljón króna til vopnakaupa fyrir Ukraníu - aftur. Íslensk stjórnvöld hafa sett um 11 milljarða króna í stríðið í Úkraníu. Af því eru tæpir 6 milljarðar í stríðsrekstur og hernaðarmál. Ofan á þetta bætir utanríkisráðherra við einn milljarð. Ætla má að fyrir lok árs gætu íslensk stjórnvöld verið búin að setja um 15 milljarða til Úkraníu. Á meðan neyðarkall þjóðar er vegna bráðamóttöku Landspítalans þá eyðir ríkisstjórnin skattfé í stríðsrekstur annarra þjóða. Það er ljóst að ríkisstjórn Íslands hefur misst raunveruleikaskyn sitt og er algjörlega tengingarlaus við þjóð sína. Hún sýnir íslenskri þjóð algjöra niðurlægingar framkomu og upphefur sig erlendis í verkefnum sem fyrir löngu á að vera búið að stöðva. Höfundur er markþjálfi og fyrrum viðbragsaðili hjá 112. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Í kvöldfréttum var augljóst að heyra neyðarkall forstjóra og starfsmanna Landspítalans vegna skelfilegs ástands sem er á bráðamóttökunni. Við heyrum fréttir af því að bílageymsla spítalans í Fossvogi sé notuð sem legurými, gangar eru fullir af bekkjum og stólum til að koma fólki fyrir og yfirkeyrt starfsfólkið gerir sitt allra besta og gera það sem telst ómanneskjulegt í eðlilegu vinnuumhverfi. Ofan á allt þetta er farið fram á 5 milljarða niðurskurðakröfu á Landspítalann en það ástand mun kalla á enn meiri hættu á mistökum og líklega dauðsföllum því álagið er nú þegar hræðilegt á allt starfsfólk og sjúklinga. Fyrir nokkrum árum var núverandi heilbrigðisráðherra landlæknir. Hún var óspar á að láta vita um skoðun sína á skelfilegu ástandi Landspítalans og bráðamóttökunnar og vildi aðgerðir strax. Nú er hún ráðherra og henni finnst í dag ekki eins ákallandi að leysa vandann í Fossvoginum og hún er hörð með fimm milljarða niðurskurðinn á stjórn spítalans. Það mátti sjá þjakaðan forstjórann í kvöldfréttunum reyna að tala ekki niður til ráðherra með von um að fá ekki reisupassann eða skammir. En þriðja fréttin var það sem vakti undrun mína en það var fundur utanríkisráðherra Íslands á Natófundi og þar ákvað hún að verja einum milljarði 1.000.000.000 milljón króna til vopnakaupa fyrir Ukraníu - aftur. Íslensk stjórnvöld hafa sett um 11 milljarða króna í stríðið í Úkraníu. Af því eru tæpir 6 milljarðar í stríðsrekstur og hernaðarmál. Ofan á þetta bætir utanríkisráðherra við einn milljarð. Ætla má að fyrir lok árs gætu íslensk stjórnvöld verið búin að setja um 15 milljarða til Úkraníu. Á meðan neyðarkall þjóðar er vegna bráðamóttöku Landspítalans þá eyðir ríkisstjórnin skattfé í stríðsrekstur annarra þjóða. Það er ljóst að ríkisstjórn Íslands hefur misst raunveruleikaskyn sitt og er algjörlega tengingarlaus við þjóð sína. Hún sýnir íslenskri þjóð algjöra niðurlægingar framkomu og upphefur sig erlendis í verkefnum sem fyrir löngu á að vera búið að stöðva. Höfundur er markþjálfi og fyrrum viðbragsaðili hjá 112.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar