Íslenska bótakerfið er orðið aðdráttarafl Lárus Guðmundsson skrifar 12. febrúar 2026 13:00 Nýjustu tölur frá Vinnumálastofnun og Hagstofu Íslands draga upp mynd sem kallar á alvarlega umræðu. Íslenska atvinnuleysiskerfið var byggt til að verja fólk í tímabundnum erfiðleikum. Í dag blasir við að sama kerfi, í samspili við EES-reglur, hefur þróast í átt að hvötum sem laða að erlenda ríkisborgara inn í kerfi sem íslenskir skattgreiðendur bera nú sífellt meiri kostnað af. Tölurnar tala skýru máli Samkvæmt janúarskýrslu Vinnumálastofnunar 2026 er heildaratvinnuleysi á Íslandi 4,9%. Þegar tölurnar eru sundurliðaðar blasir þó við gríðarlegur munur: atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara er 10,6%, á móti aðeins 2,7% meðal Íslendinga. Þetta er sláandi munur. Af 10.185 atvinnulausum í lok janúar eru 5.910 erlendir ríkisborgarar, eða 58% allra atvinnulausra. Flestir þeirra koma frá Póllandi, þar á eftir Litáen, Úkraína og Rúmenía. Á sama tíma sýna nýjustu mannfjöldatölur Hagstofunnar frá 10. febrúar 2026 að á fjórða ársfjórðungi 2025 fluttust 790 erlendir ríkisborgarar fleiri til landsins en þeir sem fóru, þrátt fyrir að atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara hafi þá þegar verið í um og yfir 10%. Spurningin hlýtur að vakna: hvað er þetta fólk allt að gera hér? Er markmiðið að vinna, eða einfaldlega að komast inn í kerfi sem býður upp á rausnarlegan bótarétt? Þegar nær 11% erlendra ríkisborgara eru atvinnulausir blasir við að vandinn snýst ekki lengur um skort á vinnuafli, heldur um hvernig hvatar kerfisins hafa verið hannaðir. EES-kerfið og hvatar þess Hluti skýringarinnar liggur í EES-kerfinu. Allir ríkisborgarar EES-landa geta safnað saman bótarétti milli landa. Með svokölluðu U1-vottorði er hægt að leggja saman starfstíma í heimalandi og á Íslandi. Lágmarksskilyrðið til að virkja rétt til atvinnuleysisbóta hér eru 425 dagvinnustundir, um 53 vinnudagar, eða tæplega þrír mánuðir í fullu starfi. Þegar þeim þröskuldi er náð opnast aðgangur að allt að 30 mánaða atvinnuleysisbótum, sem nema allt að 383.870 krónum á mánuði samkvæmt gildandi taxta frá 1. janúar 2026. Hér liggur kjarninn. 383.870 krónur á mánuði eru lágmarksframfærsla á Íslandi. En greiddar inn á pólskan eða litháískan bankareikning verða þessar sömu krónur að allt annarri stærð. Kaupmátturinn margfaldast. Þetta er ekki siðferðislegt álitaefni. Þetta eru einfaldar staðreyndir. Ef einstaklingur getur unnið hér í þrjá mánuði, myndað sér rétt til bóta til 30 mánaða og flutt síðan heim og lifað á þeim þar sem kostnaður við að halda sér uppi er brot af þeim íslenska, þá mun einhver gera nákvæmlega það. Kerfið býður upp á þessa hegðun og ljóst er hverjir það eru sem borga brúsann. Kostnaðurinn sem enginn talar um Þetta snýst ekki bara um hvata. Þetta snýst líka um raunverulegan kostnað fyrir íslenska skattgreiðendur. Miðað við 383 þúsund krónur á mánuði og 5.910 erlenda ríkisborgara á atvinnuleysisbótum erum við að greiða næstum 2,3 milljarða króna úr ríkiskassanum á hverjum einasta mánuði til þessa hóps. Á ársgrundvelli nemur þetta yfir 27 milljörðum króna. Auðvitað eru í þessum hópi harðduglegt fólk sem hefur lengi unnið hér á Íslandi og á rétt til atvinnuleysisbóta skilið. En það breytir ekki þeirri staðreynd að kerfið, eins og það er hannað í dag, býður jafnframt upp á augljósa misnotkun. Það er erfitt að réttlæta slíkan útgjaldalið á sama tíma og stjórnvöld ræða um aðhald í ríkisfjármálum, niðurskurð og hækkun skatta. Brýnt að grípa til aðgerða Íslenska atvinnuleysiskerfið var hannað til að verja fólk sem missir vinnu á íslenskum vinnumarkaði. En EES-skuldbindingar þýða að kerfið verður að gilda jafnt fyrir alla. Við virðumst ekki getað mismunað eftir ríkisfangi. Niðurstaðan er sú að Ísland rekur eitt dýrasta atvinnuleysiskerfi Evrópu, með mjög lágan aðgengisþröskuld, opið fyrir hundruð milljóna EES-borgara. Á sama tíma búum við Íslendingar við hæsta framfærslukostnað í heiminum. Þetta er ekki sjálfbært. Það er ljóst að það verður að taka þetta kerfi til gagngerrar endurskoðunar. Mikilvægt að bregðast hratt við þessu enda gríðarlegir fjármunir í húfi fyrir íslenska ríkið. Augljóslega er eitthvað rangt í kerfinu þegar 10,6% erlendra ríkisborgara eru á atvinnuleysisbótum á Íslandi, og hluti þeirra býr jafnvel erlendis og er í meintri atvinnuleit þar. Á sama tíma er atvinnuleysi Íslendinga einungis 2,7%. Þetta bendir ekki til eðlilegs jafnvægis á vinnumarkaði, heldur til kerfis sem verið er að misnota. Höfundur er varaþingmaður Miðflokksins. Heimildir: Mánaðarskýrsla Vinnumálastofnunar, birt 10. febrúar: https://island.is/s/vinnumalastofnun/frett/skrad-atvinnuleysi-i-januar-var-4-9 Hagstofan, Mannfjöldaþróun á fjórða ársfjórðungi 2025, birt 10. febrúar:https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/mannfjoldi/mannfjoldi-i-lok-4-arsfjordungs-2025/ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Ísland orðið of dýrt fyrir venjulegt líf? Valerio Gargiulo Skoðun ESB fyrir elítuna – eða almenning í landinu? Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Hvenær heyrði hann já? Helga Benediktsdóttir Skoðun Framúrakstur á ekki að ráðast af þolinmæði og heppni Hólmar Erlu Svansson Skoðun Þarf Ísland að vera dýrasta land í heimi? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Að skrúfa í sundur flugvél á flugi Eggert Sigurbergsson Skoðun Skæri fyrir örvhenta Þórgunnur Oddsdóttir Skoðun Hér kemur staðreynd: það er ekki til neinn Evrópuher Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Auðvaldið, popúlismi, hestaskeifan & ESB Kristján Reykjalín Vigfússon Skoðun Hvert er virði hins ómetanlega? - Listir varðveita mennskuna. Anna Rún Tryggvadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen skrifar Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvenær heyrði hann já? Helga Benediktsdóttir skrifar Skoðun Framúrakstur á ekki að ráðast af þolinmæði og heppni Hólmar Erlu Svansson skrifar Skoðun Skæri fyrir örvhenta Þórgunnur Oddsdóttir skrifar Skoðun Þegar þögn laganna verður að banni Bergur Hauksson skrifar Skoðun Ljósmyndin á öld lögvakans Kristján Loftsson skrifar Skoðun Af hverju heldur Gigtarfélagið fjölskylduhátíð? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Er Ísland orðið of dýrt fyrir venjulegt líf? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Kosningaþynnkan: Gervigreind er svarið við hækkandi álögum Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun ESB fyrir elítuna – eða almenning í landinu? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Hvert er virði hins ómetanlega? - Listir varðveita mennskuna. Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að skapa heilrænt samfélag einstaklinga frá mörgum löndum jarðar Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Að skrúfa í sundur flugvél á flugi Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Auðvaldið, popúlismi, hestaskeifan & ESB Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar Skoðun Þarf Ísland að vera dýrasta land í heimi? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hér kemur staðreynd: það er ekki til neinn Evrópuher Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Nágrannakærleikur í arkitektúr samanber náungakærleikur Halldóra Arnardóttir skrifar Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum: ESB sem drifkraftur lausna Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Að kjósa tækifæri, eða hafna því Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun ESB-Pakkinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gat þess ekki að við myndum borga brúsann Hjörtur J. Guðmundsson. skrifar Skoðun Friður á Segulfirði Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Vindorkan – ný fjármálabóla í ríkjum ESB? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Skipulag, ábyrgð og meirihlutamyndun Marta Rut Ólafsdóttir,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Enginn kaus Bjarna eða Brynjar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hvað myndir þú gera við auka milljón á ári? Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Galin skattheimta ríkisstjórnarinnar Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Fyrst upplýsingar og stöðugleiki, svo má kjósa Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen skrifar
Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Kosningaþynnkan: Gervigreind er svarið við hækkandi álögum Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvert er virði hins ómetanlega? - Listir varðveita mennskuna. Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Að skapa heilrænt samfélag einstaklinga frá mörgum löndum jarðar Matthildur Björnsdóttir skrifar
Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum: ESB sem drifkraftur lausna Sveinn Atli Gunnarsson skrifar