Frank rekinn frá Tottenham Sindri Sverrisson skrifar 11. febrúar 2026 10:10 Thomas Frank hefur verið rekinn. Getty/Carl Recine Tottenham hefur brugðið á það ráð að reka danska þjálfarann Thomas Frank, eftir hræðilegt gengi liðsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í vetur.
Frá þessu greindi The Athletic fyrst í dag. 🚨 EXCLUSIVE: Thomas Frank sacked as Tottenham Hotspur head coach. #THFC working through various possible contingency plans to replace 52yo Dane as club sit 14th in Premier League - 5 points above relegation zone after 2 wins from 17 matches @TheAthleticFC https://t.co/wy09K1KjjB— David Ornstein (@David_Ornstein) February 11, 2026 Tottenham tapaði ellefta deildarleiknum á tímabilinu í gærkvöld, þegar liðið lá gegn Newcastle á heimavelli, 2-1. Það reyndist síðasti naglinn í kistu Franks sem hefur verið afar valtur í sessi í vetur. Hann skilur við Tottenham aðeins fimm stigum frá fallsæti. Baulað var á Danann eftir tapið í gærkvöld en hann vildi þó ekki meina að starfið væri í hættu, þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir leik. „Ég ræddi við þá [eigendurna] í gær svo nei,“ sagði Frank. „Ég skil svekkelsið og það er auðveldast að benda á mig. Það er hluti af starfinu, því miður. Ég mun vinna dag og nótt við að snúa genginu við en þetta snýst ekki bara um eina manneskju. Það er alveg ljóst að við þurfum að bæta okkur og ég er hluti af því,“ sagði Frank. Tottenham er sagt hafa greitt Brentford 6,7 milljónir punda til að fá Frank og teymi hans síðasta sumar. Hann hafði þá stýrt Brentford með góðum árangri í sjö ár. Þrátt fyrir skelfilegt gengi í ensku úrvalsdeildinni, þar sem Tottenham er með 29 stig eftir 26 leiki, í 16. sæti, varð liðið í 4. sæti deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu og er því komið áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Næsti leikur Tottenham er slagur við erkifjendurna í Arsenal þann 22. febrúar.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira