Frestar tónleikum heilsunnar vegna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. febrúar 2026 09:39 Demi Lovato setur heilsuna í fyrsta sæti. Kayla Bartkowski/Getty Images Bandaríska söngkonan Demi Lovato hefur frestað tónleikaferðalagi sínu vegna heilsufarsástæðna. Söngkonan segist með ákvörðun sinni vera að setja heilsu sína í forgang en tæp tíu ár eru frá því söngkonan var nær dauða en lífi eftir að hafa tekið of stóran skammt af fíkniefnum. „
Ég er svo spennt fyrir því að fara aftur á svið þetta árið og heimsækja ykkur í eins mörgum borgum o ég get. Þegar ég hófst handa við að undirbúa mig fyrir tónleikaferðalagið áttaði ég mig á því að ég hljóð á mig. Til verndar heilsu minnar og tryggja að ég geti gert mitt allra besta á tónleikum þá þarf ég meiri tíma til að hvíla mig og æfa mig,“ segir söngkonan í einlægri færslu á Instagram. Árið 2021 greindi hún frá því að hún hefði verið nær dauða en lífi eftir að hafa tekið of stóran skammt af fíkniefnum. Hún hafi fengið þrjú heilablóðföll og hjartaáfall vegna skammtsins og sagt af læknum að hún hafi verið fimm til tíu mínútum frá því að deyja. Fram kemur í færslu söngkonunnar að aðdáendur hennar sem hún átti að heimsækja í Charlotte, Nashville, Atlanta, Las Vegas og Denver muni því sitja eftir með sárt ennið. Hún muni því ekki hefja tónleikaferðalagið fyrr en 13. apríl og þá í Orlando í Flórída. Söngkonan hefur marga fjöruna sopið undanfarin ár og á ótrúlega Íslandstengingu. Þannig lék hún til að mynda hlutverk í Eurovision mynd Will Ferrell árið 2021 en þar lék hún söngkonu sem átti að vera fulltrúi fyrir Íslands hönd í söngvakeppninni þar til örlögin stigu inn í.
Tónlist Bandaríkin Hollywood Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Lífið samstarf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Lífið samstarf Fleiri fréttir Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Sjá meira