Britney selur réttinn að tónlist sinni fyrir milljarða Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 11. febrúar 2026 07:45 Britney Spears á farsælan tónlistarferil að baki en hefur glímt við erfiðleika í sínu persónulega lífi. Getty/Axelle/Bauer-Griffin Poppstjarnan Britney Spears er sögð hafa selt réttinn að allri tónlist sinni til útgefandans Primary Wave sem mun hafa greitt um 200 milljónir Bandaríkjadala fyrir réttinn að tónlist söngkonunnar. Britney, sem meðal annars er þekkt fyrir smellina Oops I did it again, Toxic og Baby one more time, hefur sagst aldrei ætla að snúa aftur í tónlistarbransann, en hún gaf síðast út lag árið 2022 með Elton John.
Samkvæmt umfjöllun BBC um málið verður Primary Wave nýr rétthafi að allri útgefinni tónlist söngkonunnar eftir kaupin sem áttu sér stað í lok desember að því er fram kemur í umfjöllun miðilsins. Hvorki teymi Spears né Primary Wave hafa þó svarað fyrirspurnum BBC um málið enn sem komið er. Áætlað kaupverð nemur sem jafngildir tæpum 24,5 milljörðum íslenskra króna, en endanlegt kaupverð hefur ekki verið staðfest opinberlega. Britney Spears fór síðast á tónleikaferðalag um Bandaríkin árið 2018 þegar hún hélt í Piece of Me-túrinn. Hún hefur ekki gefið út nýja plötu síðan 2016 og síðasta lag hennar kom út 2022.Getty Í janúar 2024 sagðist Britney „aldrei ætla að snúa aftur í tónlistarbransann“ en líf hennar litaðist um margra ára skeið af því að hafa ekki sjálfræði yfir eigin lífi og fjármálum, heldur faðir hennar sem hafði forræði yfir henni. Britney er ein farsælasta tónlistarkona heims með tilliti til seldrar tónlistar, en hún hefur selt yfir 150 milljónir platna en hún hefur gefið út alls níu plötur frá upphafi ferilsins árið 1999. Primary Wave er einnig rétthafi tónlistar annarra listamanna á borð við Notorious Big, Prince og Whitney Houston, en sem dæmi um aðra þekkta listamenn sem einnig hafa selt réttinn að tónlist sinni eru Bruce Springsteen, Justin Bieber og nafni hans Justin Timberlake, fyrrverandi kærasti Britney. Í spilaranum hér að neðan má sjá tónlistarmyndbandið við dúett Eltons John og Britney Spears frá 2022 sem er endurgerð af þekktu lagi Eltons, Hold me closer.
Sjálfræðisbarátta Britney Spears Tónlist Höfundar- og hugverkaréttur Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira