Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Agnar Már Másson skrifar 10. febrúar 2026 20:55 Atvikið átti sér stað á Seltjarnarnesi. vísir/vilhelm Kona hefur verið dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á fyrrverandi sambýlismann sinn. Hún lýsti mikilli vanlíðan í kjölfar sambandslita þeirra tveggja.
Konan var ákærð í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás með því að hafa ráðist á fyrrverandi sambýlismann sinn á Seltjarnarnesi í ágúst 2024 og sparkað ítrekað í vinstri fót hans með þeim afleiðingum að hann hlaut yfirborðsáverka á fótlegg. Fallist var á þann ákærulið um að konan hefði kýlt brotaþola með krepptum hnefa í andlitið. Dómur var kveðinn 6. febrúar. Árásin átti sér stað innandyra á Seltjarnarnesi. Konan játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi og lýsti yfir iðrun sinni vegna háttseminnar auk þess sem hún lagði fram vottorð sálfræðings þar sem staðfest er að hún leitaði sér aðstoðar sálfræðings vegna mikillar vanlíðanar í tengslum við sambandsslit og samskipta sem hafa fylgt í kjölfarið. Var það allt henni til málsbóta en henni til refsiþyngingar var þó tekið tillit til þess að maðurinn hafi hlotið líkamtjón af atlögunni. Dómurinn var því 30 dagar en skilorðsbundinn til eins árs.
Seltjarnarnes Heimilisofbeldi Dómsmál Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira