Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Kristján Már Unnarsson skrifar 8. febrúar 2026 08:00 Þuríður Sigurðardóttir söngkona klædd flugfreyjubúningi í Sádí-Arabíu þegar hún starfaði sem flugfreyja hjá Air Atlanta. úr einkasafni Þegar Air Atlanta tók að sér viðamikið pílagrímaflug fyrir Saudia-flugfélagið árið 1993 lét Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda félagsins, hanna og sauma sérstaka flugfreyjabúninga. Í þættinum Flugþjóðin lýsa fyrrverandi og núverandi starfsmenn íslenskra flugfélaga því hvernig var að starfa undir vökulum augum trúarlögreglu í Sádí-Arabíu.
Pílagrímaflug var meðal fyrstu verkefna Air Atlanta eftir að þau Arngrímur Jóhannsson og Þóra Guðmundsdóttir stofnuðu félagið árið 1986. Áður höfðu Air Viking, Arnarflug og Flugleiðir sinnt pílagrímaflugi en hér má sjá kafla úr þættinum: Fyrrverandi flugfreyjur lýsa því hve verkefnin voru ólík öllum öðrum sem íslenskar flugáhafnir fengu. Þetta var algerlega ný lífsreynsla, eins og að kynnast farþegum sem ekki kunnu að nota salernin um borð. Þær settu á klósettvakt og Þuríður Sigurðardóttir teiknaði klósettleiðbeiningar í von um minnka vandræðin. Flugfreyjubúningarnir mátaðir í höfuðstöðvum Air Atlanta í Mosfellsbæ árið 1993. Þóra Guðmundsdóttir til hægri.Stöð 2/skjáskot Fyrrverandi flugfreyjur Flugleiða lýsa því hvernig þær þurftu stöðugt að vera að passa sig. Ein var til dæmis tekin með danskt prjónablað þar sem ljósmynd af fyrirsætu í sundfötum þótti ósæmandi. Önnur hlaut háa sekt fyrir að vera með konfektkassa sem innihélt súkkulaðimola með vott af áfengi í. Fyrrverandi flugfreyjur Flugleiða, þær Kristín Bernhöft og Nanna Norðfjörð, lýsa reynslu sinni af pílagrímafluginu.Egill Aðalsteinsson Frá fyrstu tíð þurftu íslensku flugfreyjurnar að gæta sín í klæðaburði, þótt framan af gætu þær klæðst hefðbundum vestrænum flugfreyjubúningum. Reglur um hvað mátti sjást í af líkamshlutum kvenna urðu hins vegar mun strangari í Sádí-Arabíu eftir Persaflóastríðið árið 1991. Íslenskar flugfreyjur um borð í þotu Air Atlanta ásamt flugmanni. Þuríður Sigurðardóttir til vinstri.Úr einkasafni Á undanförnum árum hefur Sádí-Arabía hins vegar þróast til baka í átt til aukins frjálslyndis. Því lýsa núverandi starfsmenn Air Atlanta í pílagrímafluginu, flugstjórinn Guðlaugur Ingi Sigurðsson, Einar Blandon, sviðsstjóri flugrekstrar, og Einar Sebastian Ólafsson yfirflugþjónn. Þóra Guðmundsdóttir í flugfreyjubúningnum árið 1993.Stöð 2/skjáskot Þættina má nálgast á streymisveitunni Sýn+. Hér eru sýnishorn úr næstu þáttum:
Flugþjóðin Air Atlanta Icelandair Fréttir af flugi Sádi-Arabía Tengdar fréttir Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Starfsmenn íslenskra flugfélaga, sem sinntu pílagrímaflugi í Sádí-Arabíu á árum áður, urðu sumir fyrir þeirri óhugnanlegu lífsreynslu að verða vitni að opinberri aftöku. Þetta kemur fram í þætti Sýnar um pílagrímaflugið í nýrri þáttaröð um Flugþjóðina. 4. febrúar 2026 22:40 Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug „Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður. 26. desember 2025 07:47 Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta. 11. júlí 2024 21:42 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Starfsmenn íslenskra flugfélaga, sem sinntu pílagrímaflugi í Sádí-Arabíu á árum áður, urðu sumir fyrir þeirri óhugnanlegu lífsreynslu að verða vitni að opinberri aftöku. Þetta kemur fram í þætti Sýnar um pílagrímaflugið í nýrri þáttaröð um Flugþjóðina. 4. febrúar 2026 22:40
Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug „Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður. 26. desember 2025 07:47
Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta. 11. júlí 2024 21:42