Báknið óhaggað, tíma sóað, Miðflokkurinn á móti Kjartan Magnússon skrifar 7. febrúar 2026 10:00 Í hliðstæðum veruleika Viðreisnarmanna stendur mikið til. Þeir ætla að minnka báknið, auka jafnrétti kynjanna og loka landinu — jafnvel senda einhverja útlendinga til síns heima. Þeir komast samt aldrei lengra en að tala um að gera þessa hluti. Og alltaf er séð til þess að sú merka hugræna vinna sé fest á filmu. Ef ljósmyndarinn er flokksbundinn er ekki hægt að útiloka að Viðreisnarmenn geri stöku sinnum handtak. Nýsamþykkt frumvarp Viðreisnar um sameiningu níu sýslumannsembætta er dæmi um þetta. Frumvarpið hefur verið rætt á þremur þingum frá árinu 2021. Formaður Uppreisnar heldur því fram (í grein á Vísi 5. febrúar) að Miðflokkurinn sé á móti því að minnka báknið vegna þess að hann kaus ekki með frumvarpinu. Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, ítrekar reyndar í nefndaráliti sínu stuðning við fögur fyrirheit „...um að efla starfsemi á landsbyggðinni og hagræðingu í ríkisrekstri.“ En ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið. Ekki er t.d. nokkur trygging fyrir því að sameining embætta fækki opinberum störfum. Í greinargerð kemur fram að „varanlegri fjárhagslegri hagræðingu sem hlýst af sameiningunni“ verði varið í „frekari uppbyggingu og framþróun sameinaðs embættis og eftir atvikum í ný verkefni og stöðugildi“. Þessi texti ber sannarlega með sér einbeittan hagræðingarásetning. Í þessum veruleika hér, raunveruleikanum, blasir við að engar stórkostlegar breytingar eru í vændum á starfsemi sýslumanns (eða -manna). Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneytinu kemur fram að mögulega sparist 150-200 m.kr. árlega vegna þessara breytinga. Það kemur utanríkisráðherra Viðreisnar eflaust vel þegar hann fer í næstu utanferð með hirðljósmyndaranum til að útdeila skattfé Íslendinga til erlendra hagsmunasamtaka. Í raun kemur það spánskt fyrir sjónir að formaður ungra Viðreisnarmanna trúi því að báknið hafi með þessu dregist saman og það örfáum vikum eftir að fjármálaráðherra Viðreisnar jók ríkisútgjöld um 146 milljarða. Þegar á hólminn er komið mun almenningur refsa Viðreisn fyrir dugleysi í raunveruleikanum og kæra sig kollóttan um hina fögru óskaveröld hennar. Höfundur er varaformaður ungliðahreyfingar Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Miðflokkurinn Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Í hliðstæðum veruleika Viðreisnarmanna stendur mikið til. Þeir ætla að minnka báknið, auka jafnrétti kynjanna og loka landinu — jafnvel senda einhverja útlendinga til síns heima. Þeir komast samt aldrei lengra en að tala um að gera þessa hluti. Og alltaf er séð til þess að sú merka hugræna vinna sé fest á filmu. Ef ljósmyndarinn er flokksbundinn er ekki hægt að útiloka að Viðreisnarmenn geri stöku sinnum handtak. Nýsamþykkt frumvarp Viðreisnar um sameiningu níu sýslumannsembætta er dæmi um þetta. Frumvarpið hefur verið rætt á þremur þingum frá árinu 2021. Formaður Uppreisnar heldur því fram (í grein á Vísi 5. febrúar) að Miðflokkurinn sé á móti því að minnka báknið vegna þess að hann kaus ekki með frumvarpinu. Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, ítrekar reyndar í nefndaráliti sínu stuðning við fögur fyrirheit „...um að efla starfsemi á landsbyggðinni og hagræðingu í ríkisrekstri.“ En ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið. Ekki er t.d. nokkur trygging fyrir því að sameining embætta fækki opinberum störfum. Í greinargerð kemur fram að „varanlegri fjárhagslegri hagræðingu sem hlýst af sameiningunni“ verði varið í „frekari uppbyggingu og framþróun sameinaðs embættis og eftir atvikum í ný verkefni og stöðugildi“. Þessi texti ber sannarlega með sér einbeittan hagræðingarásetning. Í þessum veruleika hér, raunveruleikanum, blasir við að engar stórkostlegar breytingar eru í vændum á starfsemi sýslumanns (eða -manna). Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneytinu kemur fram að mögulega sparist 150-200 m.kr. árlega vegna þessara breytinga. Það kemur utanríkisráðherra Viðreisnar eflaust vel þegar hann fer í næstu utanferð með hirðljósmyndaranum til að útdeila skattfé Íslendinga til erlendra hagsmunasamtaka. Í raun kemur það spánskt fyrir sjónir að formaður ungra Viðreisnarmanna trúi því að báknið hafi með þessu dregist saman og það örfáum vikum eftir að fjármálaráðherra Viðreisnar jók ríkisútgjöld um 146 milljarða. Þegar á hólminn er komið mun almenningur refsa Viðreisn fyrir dugleysi í raunveruleikanum og kæra sig kollóttan um hina fögru óskaveröld hennar. Höfundur er varaformaður ungliðahreyfingar Miðflokksins.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar