Toyotan, sviðasultan & kötturinn Árni Stefán Árnason skrifar 5. febrúar 2026 09:30 Seint verður laganna vörðum hrósað um of. Þeir gæta samborgara sinna af samviskusemi, eru ómissandi, því miður. En þeir eru auðvitað jafn misjafnir og þeir eru margir og ekki öfundsverðir í þessu kolruglaða samfélagi sem ég tel Ísland orðið. Nýlega ók ég framhjá konu, sem lá hreyfingarlaus í nístingskulda á gangstétt ófær um að hreyfa sig. Laganna verðir komu nánast strax og aðstoðuðu konuna. Þarna þekki ég lögguna frá því í gamla daga, háttvísa, áreiðanlega, hjálpsama og meira segja annar ofurblíður án húfu og í lopapeysu. Það var heimilislegt að sjá. Mér leiðist nefnilega hefðbundin múndering laganna varða í dag. Alveg óskaplega. Kjarni skrifa þessara er 1. Ekki fyrir svo löngu síðan lenti vinur minn í því að 20. millj. króna Landcruiser bifreið hans var stolið. Hann hringdi í lögregluna og bjóst auðvitað við að hún kæmi á vettvang til skýrslutöku og svo eftirfarar því það sást til bifreiðarinnar sem tók jeppann á brott og augljóst hver þjófurinn væri. Nei, viðmótið var frekja, óhjálpsemi og hrein ólund. Hann yrði að koma á næstu lögreglustöð, fótgangandi, með flensu í skítakulda til þess að gefa skýrslu. Hvurslags dónaskapur er þetta kæri dómsmálaráðherra? 2. Sami vinur minn fór nýlega í verslun Bónus í Hafnarfirði. Honum láðist að fjarlægja sælgætisumbúðir úr körfunni en hann tók eftir þeim. Á síma hélt hann í hægri hendi og tók nokkrar vörur með þeirri vinstri. Í kæli teygði hann sig eftir sviðasultu pakkaði henni óvart ásamt símanum í vinstri hendi og stakk í úlpuvasa sinn. Vinur minn var í nokkurri geðshræringu þessa stundina á leið á bráðamóttöku LHS eftir að hundur hafði bitið hann til blóðs. Síðan ók hann kerru sinni um verslunina og framkvæmdi innkaup upp á um 20. þús. Við kassann tekur hann upp símann, gleymir sultunni, greiðir og ætlar að ganga út þegar hann er stöðvaður af öryggisverði, eðlilega, hann hafði séð vin minn stinga sultunni í vasann. Kom síðan einstaklega óháttvís og illa fyrir kallaður verslunarstjóri og fundur var haldinn um þennan mikla meinta þjófnað í starfsmannaherbergi. Vinur minn bauðst auðvitað strax til að greiða fyrir þessa þunnu sviðasultusneið, en nei, þetta skildi fara rétta leið í réttarrríkinu ákvað fölur og skapstyrður verslunarstjórinn að því er virtist rétt búinn að ná lögaldri og eflaust á eymdarkjörum. Ekki nóg með að þjófnaður á sviðasultu hafi verið borin upp á vin minn heldur líka þjófnaður á einhverju kremkexi hverjar umbúðir voru í innkaupakörfunni. Verslunarstjórinn var mjög illa áttaður og alls ekki starfi sínu vaxinn. Hann svipti vin minn ferðafrelsi í um 60 mín. með aðstoð útlensks öryggisvarðar, sem virtist ölvaður. Loks kom háttvíst þriggja manna lögreglulið, tók skýrslu og sagði vin minn frjálsan ferða sinna. Vinur minn er með hreint sakavottorð. Allnokkrir aðilar tengdir Bónus hafa nú verið kærðir til lögreglu fyrir rangar sakargiftir og skerðingu á ferðafrelsi en við hvoru tveggja getur legið þung refsing. 3. Rúsínan í pylsuendanum er þriðja dæmið um annan vin. Hann býr á nálægð klausturs í Hafnarfirði. Greip hann eitt sinn kött í nálægð klaustursins sem hann hafði saknað í mánuði. Íbúar klaustursins tjáðu lögreglu að endurheimtin hafði náðst á öryggismyndavél og kölluðu til til lagana verði, sem voru alveg sérstaklega háttvísir að sögn vinar míns. Verðir laganna komu sumsé (vegna kattar sem ágreiningur er um eignarrétt á og heimtuðu köttinn til baka á meðan heill nunnuhópur fylgdist eins og kjánar með aðgerðum vopnaðar farsímum með leifturljósið stöðugt í gangi öskrandi og æpandi eins og sönnum nunnum sæmir ei. Það var skondin sjón að sögn vinar míns. Skýringar lögreglu á kröfu um afhendingu voru að kötturinn væri á gigtarlyfjum, sem var auðvitað lygi. Þetta er fullfrískur ungur högni. Engu að síður afhenti vinur minn köttinn til að stofna ekki til frekari ófriðar við nágranna sína sem skeyta yfirleitt engu að ná sínu fram og eru teknir trúanlegir fyrir það eitt að vera NUNNUR! Brjóta auðvitað aldrei 7 og 8 boðorðið. Samantekt og kjarni málsins: lögreglan sinnir ekki þjófnaði á rándýru ökutæki en sendir þrjá lögreglumenn til yfirheyrslu og skýrslutöku í Bónus, vegna meints þjófnaðar á 1000 króna sviðasultu og tvo lögreglumenn vegna meintrar en ósannrar gripdeildar á ketti. Kæri dómsmálaráðherra, það er stundum ekki heil brú í starfsháttum undirmanna þinna á þessu sviði, forgangsröðun og áherslur óskiljanlegar. Þetta eru ekki einu tilvikin sem mér er kunnugt um. Höfundur er dýraverndarlögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Stefán Árnason Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar