Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 4. febrúar 2026 08:12 Ingibjörg Davíðsdóttir segir Miðflokkinn kominn um borð en þingsályktunartillaga Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um varnar- og öryggisstefnu var samþykkt á Alþingi í gær, með stuðningi allra flokka á Alþingi. Vísir/samsett Alþingi samþykkti í gær fyrstu formlegu varnar- og öryggisstefnu Íslands með stuðningi þingmanna allra flokka á Alþingi sem viðstaddir voru atkvæðagreiðsluna. Í umræðu um atkvæðagreiðsluna kepptust þingmenn við að koma upp í pontu og fagna þessum áfanga og hrósa hver öðrum fyrir samstarfið og þá vinnu sem lögð var í að ná breiðri sátt um málið.
Meðal þeirra málamiðlana sem gerðar voru við vinnslu málsins í utanríkismálanefnd var að taka út orðalag þar sem minnst var á Evrópusambandið. Þá kom nefndin sér saman um að skerpa á orðalagi til að stefnan nái yfir ógnir og áhættuþætti af mannavöldum, sem ekki eru beinlínis hernaðarlegir og áréttað að varnar- og öryggisstefnan skuli vera órjúfanlegur hluti af þjóðaröryggisstefnunni. Þakka Pawel og Víði Þingmenn voru það duglegir að koma upp í pontu til að hrósa og fagna áfanganum í umræðu um atkvæðagreiðsluna að það minnti helst á þverpólitískt hópknús. Fulltrúi Miðflokksins hafði dregið sig úr samráðshópi þingmanna sem vann skýrslu sem varnar- og öryggisstefnan byggir að miklu leyti á, en nú er Miðflokkurinn „kominn um borð“ líkt Ingibjörg orðaði það sjálf í atkvæðagreiðslu um málið. Formaður flokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins sem situr í utanríkismálanefnd, nýtti einnig tækifærið til að hrósa. Umræðu um atkvæðagreiðsluna má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan. „Ég tel ástæðu til að hrósa háttvirtum þingmanni Pawel Bartoszek, formanni utanríkismálanefndar, fyrir að leitast við að gera það sem þurfti til að ná þeirri samstöðu sem mun birtast hér. Okkur kann að greina á um eitt og annað í utanríkismálum og ástæðulaust að setja ágreiningsefni inn í stefnu sem að við ættum að geta sameinast um. En ráðin var bót á því og fyrir það vil ég þakka,“ sagði Sigmundur, sem lét ekki duga að fara einu sinni, heldur tvisvar, í pontu til að fagna samstöðunni um málið. Sigmundur Davíð fagnar þeirri breiðu samstöðu sem náðist um varnar- og öryggisstefnu.Vísir/Anton Brink Flokkssystir hans Ingibjörg tók undir og þakkaði sérstaklega einnig Víði Reynissyni, þingmanni Samfylkingarinnar, sem hafi lagt sín lóð á vogarskálarnar við að ná samkomulagi um málið. „Hann átti mjög mikilvæga aðkomu að því að þessi sátt náðist. Þannig að það sé bara skjalfest,“ sagði Ingibjörg. Sammála um að verja Ísland Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður nefndarinnar, var einnig meðal þeirra sem kvöddu sér hljóðs um málið. „Öryggi íbúa og varnir landsins eru ein af frumskyldum ríkisvaldsins. Og þegar kemur að þessum málum þá tel ég að samstaða hafi ákveðið þjóðaröryggisgildi í sjálfu sér,“ sagði Pawel meðal annars. Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, er ánægður með störf nefndarinnar.Vísir/Vilhelm Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og ráðherra varnarmála, átti svo síðasta orðið áður en gengið var til atkvæðagreiðslu. „Því miður, þá er ærin ástæða fyrir því að við þurfum að setja hana fram, en þess þó heldur er það einmitt mikilvægt að það ríki samstaða sem að felur í sér mjög skýr skilaboð til umheimsins um að það ríki samstaða um það hvernig við högum okkar vörnum og okkar öryggi,“ sagði Þorgerður Katrín, um leið og hún þakkaði öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við vinnslu málsins. „Við erum ekkert endilega sammála um allt, en við erum sammála um það að verja Ísland.“
Alþingi Öryggis- og varnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Miðflokkurinn Utanríkismál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira