Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Agnar Már Másson skrifar 3. febrúar 2026 19:28 „Þetta er til rannsóknar enn þá, við vitum ekki nákvæmlega allt en það er að koma mynd á þetta. Í það minnsta kylfa notuð.“ Aðsend Kylfu var beitt í slagsmálum sem skárust upp í íbúð að Álftarima á Selfossi í dag. Einn maður var handtekinn og annar liggur á spítala. Samkvæmt heimildum fréttastofu urðu slagsmálin milli tveggja gestkomandi manna.
Sérsveitin var kölluð út kl. 15 í dag að blokk við Álftarima 9 á Selfossi eftir að tilkynnt var um slagsmál. Samkvæmt heimildum Vísis hafði tilkynningin snúið að slagsmálum í bíl fyrir utan húsnæðið. Lögregla segir að grunur hafi leikið á um að vopn væru í spilinu. Þegar lögregla og vopnaðir sérsveitarmenn mættu á vettvang gengu þeir inn í húsnæðið með múrbrjót meðferðis, sem notaður er til þess að brjóta niður hurðir, að sögn sjónarvotta. Einn hefur verið handtekinn, að sögn lögreglu. „Þetta voru tveir sem áttu í hlut þarna með beinum hætti, en einhver vitni samt,“ segir Þorsteinn M. Kristinsson aðalvarðstjóri þó í samtali við Vísi. Annar mannanna sé á spítala þar sem hann hafi hlotið áverka. Þorsteinn segir að kylfu hafi verið beitt. Samkvæmt útkallinu hafi reyndar grunur leikið á að eggvopni væri beitt en hann segir engar upplýsingar liggja fyrir um hugsanlega stunguáverka. „Þetta er til rannsóknar enn þá, við vitum ekki nákvæmlega allt en það er að koma mynd á þetta. Í það minnsta kylfa notuð.“ Á myndskeiðum frá vettvangi má sjá mann klæddan í röndótta yfirhöfn tekinn höndum af lögregluþjónum.
Lögreglumál Árborg Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira