Skóli án veruleikatengingar Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 11:01 Okkur er tíðrætt um skóla án aðgreiningar þessa dagana. Kerfið er hræðilegt en það byggist á göfugri hugmynd. Við höfum lengi verið þess áskynja, en hugmyndafræðin heldur skólastofunni í gíslingu. Staðreyndin er að innleiðing skóla án aðgreiningar hefur kollvarpað íslensku skólakerfi í grundvallaratriðum. Hugmyndir um jöfnuð og réttindi hafa steypt af stóli áherslum á mælanlegan árangur. Skólakerfið hleypur undan samræmdum mælikvörðum og lýsandi einkunnum. Árangursmælingar myndu sýna að kerfið virkar ekki og getur ekki virkað á þeim forsendum sem eru gefnar. Stefna skóla án aðgreiningar er byggð á innleiðingu Salamanca-yfirlýsingarinnar frá 1994. Í yfirlýsingunni segir að „börn séu mismunandi og hafi sérstök áhugamál, hæfileika og námsþarfir; í skipulagi menntakerfisins og tilhögun náms beri að taka mið af miklum mun á einstaklingum og þörfum þeirra,“ jafnframt eigi að „sinna öllum börnum án sérstakrar aðgreiningar, hvað sem líður mismun þeirra og örðugleikum sem þau eiga við að glíma.“ Það er margt ágætt sem í yfirlýsingunni kemur fram en annað hornrekst svo illa að afurðin verður óskapnaður. Öll getum við verið sammála um að vilja börnum hið besta óháð þáttum sem þau fá ekki breytt. Hvernig við nálgumst það markmið skiptir hins vegar máli. Staðreyndin er að skóli án aðgreiningar byggist á gagnstæðum hugmyndum sem geta ekki farið saman – annars vegar á skólinn að mæta mjög ólíkum þörfum barna en hins vegar á hann að sinna öllum börnum án aðgreiningar. Þetta hefur aldrei verið framkvæmanlegt í raun. Almenna skólakerfið er ekki laust við aðgreiningu þrátt fyrir allt. Aldursskipting er enn viðtekin venja í skólakerfinu sem enginn hefur reynt að skáka. Árgangakerfið byggist á væntingum um ólíkan þroska og námsgetu eftir aldri og það er skynsamlegt. Þrátt fyrir það sýna sumir 3. bekkingar námsfærni umfram suma 10. bekkinga. Sum börn þroskast fyrr en önnur, og munur er á þroskaferli stúlkna og drengja. Þarfir jafnaldra barna eru að meðaltali líkar en í mörgum tilfellum ólíkar. Sú hagnýta aðgreining sem aldursskipting felur í sér er því ekki alls staðar nægileg. Þrátt fyrir allar opinberar kennisetningar, innleiðingar, lög og alþjóðasáttmála þá höfum við líka enn, sem betur fer, sérskóla þar sem börn með sérstakar þarfir geta fengið sérhæfða menntun. Arnarskóli og Klettaskóli eru fyrirtaks dæmi, en þar hafa nemendur með fötlun ríkuleg tækifæri til náms á eigin forsendum. Mörg dæmi eru til um nemendur sem hafa lent í þroti í almenna kerfinu og svo dafnað þegar þeir komast í skjól í sérúrræði, með tilheyrandi létti fyrir börnin og fjölskyldur þeirra. En þótt sérskólarnir hafi hingað til staðið af sér áhlaupin þá hafa einstrengingslegar meinlokur veiklað viðnámsþrótt almenna kerfisins. Hugmyndir um að eitt skuli yfir alla ganga hamla menntun og getu til að takast á við raunveruleg vandamál. Meðal nýrra áskorana er fjölbreyttari menningar- og tungumálabakgrunnur en áður hefur þekkst í íslensku skólakerfi. Kennslustofa sem telur nemendur með fjölmörg ólík móðurmál og takmarkaða íslenskukunnáttu getur með engu móti tryggt eðlilega námsframvindu. Athygli kennarans leitar þangað sem þörfin er mest og önnur börn sitja á hakanum á meðan. Spurningar um rétt til menntunar verða spurningar um réttindi hverra og til hvers í kerfi sem annast ekki lágmarksviðmið. Skortur á gagnsæi og mælanlegum árangri er það sem gerir skóla án aðgreiningar sérstaklega tortryggilegan í augum almennings. Aðgerðir í þágu yfirlýstra markmiða ættu að lúta kerfisbundinni athugun og leiðréttingum þegar þar á við. Hið gagnstæða gildir. Kerfið keyrir á hugmyndafræðilegri sjálfstýringu án þess að hafa nokkurn tímann sýnt fram á tilætluð markmið á mælanlegan hátt. Verjendur kerfisins tala um réttindi, en aldrei um fórnarkostnað eða raunverulegar leiðir að markmiðinu. Þeir sem verja kerfið geta aldrei vísað í gögn, aðeins í göfuga kennisetningu alþjóðasamninga þar sem hugsjónir hafa orðið viðskila við heilbrigða skynsemi. Ef stefnan skilaði árangri væri hægt að sýna fram á það. Hið augljósa er að það mun aldrei gerast. Ef við ætlum okkur að leysa skólavandann verðum við fyrst að koma okkur saman um hlutverk og markmið skólakerfisins. Það hljómar eins og augljós staðreynd, en það er langt síðan við gerðum það síðast. Ég er afurð núverandi kerfis og er byrjuð að finna til aldurs. Ég tel að hlutverk skólans sé að mennta börn og að það sé gagnkvæmt samband sem byggist á aga, virðingu og metnaði fyrir skólastarfinu sjálfu. Til að skólakerfi skari fram úr verða nemendur að mega skara fram úr. Í eðli sínu þýðir það að ekki verði allt jafnt; en það sem er jafnt er ekki alltaf sanngjarnt og það sem er sanngjarnt er ekki alltaf jafnt. Höfundur er félagsfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hlédís Maren Guðmundsdóttir Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar