„Eins og íslenska krónan, okkur vantar stöðugleika“ Hinrik Wöhler skrifar 29. janúar 2026 20:45 Stefán Arnarson, þjálfari Hauka, líkti liðinu við íslensku krónuna eftir dramatískan sigur. Vísir/Anton Brink Stefáni Arnarsyni, þjálfara Hauka, var létt í leikslok eftir dramatískan sigur gegn ÍR á Ásvöllum í kvöld. Haukar höfðu yfirhöndina framan af leik en misstu niður forskotið þegar leið á og endaði leikurinn 23–22. „
Það var kafli í seinni hálfleik þar sem við hefðum getað náð þessu í fjögur eða fimm mörk en nýttum það ekki. Hleyptum þeim inn í leikinn og það er hættulegt þar sem ÍR er sterkt lið. Þess vegna var dramatík,“ sagði Stefán eftir leikinn. Haukar áttu í mestum erfiðleikum með að skora um miðbik seinni hálfleiks og náðu ekki að koma boltanum í netið í tæpar tíu mínútur. Stefán var spurður út í þennan kafla og greip þá til myndlíkingar úr íslensku efnahagslífi. „Við erum eins og íslenska krónan, okkur vantar stöðugleika. Þetta fer upp og niður hjá okkur og við erum að reyna vinna í því. Við unnum og það er sem skiptir máli.“ ÍR-ingar voru allt annað en sáttir með rautt spjald sem Vaka Líf Kristinsdóttir fékk í seinni hálfleik. Stefán gaf lítið fyrir þá gagnrýni og sagði línuna góða hjá Sigurði Hirti Þrastarsyni og Svavari Ólafi Péturssyni, dómurum leiksins. „Þetta er línan sem var í dag og mjög margar brottvísanir, bara góðir dómarar og ekkert við því að segja. Jafnt á bæði á lið.“ Hörð barátta um þriðja sætið Með sigrinum lyfta Haukar sér í þriðja sæti deildarinnar, stigi fyrir ofan ÍR, og eru liðin í harðri baráttu þegar sex umferðir eru eftir. Sex efstu liðin fara í úrslitakeppni Olís-deildar kvenna. Að auki eiga Haukar bikarleik gegn Víkingum á þriðjudaginn í næstu viku og er stefnan skýr. „Við eigum núna bikarleik á þriðjudaginn sem við þurfum að vinna og ætlum að koma okkur í Final Four. Svo eigum við Val og Fram þannig við erum að fara í erfitt prógram.“ „Við erum þó á uppleið og margt jákvætt í leik okkar en við getum bætt margt,“ sagði Stefán að lokum.
Olís-deild kvenna Haukar Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira