Með hendur fyrir aftan bak í fimm hundruð metra hæð Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. janúar 2026 15:04 Alex Honnold er djarfari en flestir. netflix Alex Honnold afrekaði enn eitt ótrúlega klifrið í nótt, í beinni útsendingu á Netflix, þegar hann klifraði 508 metra háan skýjakljúf í Taipei án tryggingar. Hann lék sér að því að setja hendur fyrir aftan bak rétt áður en hann komst á toppinn.
101 hæða byggingin er sú hæsta í Taívan og var eitt sinn sú hæsta á heimsvísu, frá 2006-10, og er í dag sú ellefta hæsta í heimi. Honnold klifrar tryggingalaust, án nokkurs öryggisbúnaðar, kaðla, belta eða neta. Frjáls sem fuglinn ef hann fellur. Kalktunna hangir utan á Honnold og er eina hjálpartækið sem hann notar. Hann þurfti að glíma við krefjandi aðstæður. Klifrið átti að gerast í gær en því þurfti að fresta vegna rigningar. Byggingin er klædd gleri, áli og stáli þannig að sem betur fer skein sólin í dag og þurrkaði sleipa dropa. Vindurinn í borginni var þó ekki til þess gerður að hjálpa Honnold. Alex Honnold climbed a skyscraper with NO ropes. The world will wake up and hear about one of the most remarkable feats in the history of humanity. Here is Alex the 89th floor. Fans filming inside. Imagine the wind against him. Imagine knowing one wrong move would be fatal.… pic.twitter.com/HP5AH6GvGN— Dr. Malachi - (Dr. Run) (@malachiobrien) January 25, 2026 Mikill mannfjöldi var svo mættur þegar hann hóf klifrið, sem er óvenjulegt fyrir Honnold. Hann klifrar vanalega á afskekktari stöðum og er frægastur fyrir að klifra El Capitan tindinn í Yosemite fjallgarðinum. Úr því var gerð heimildarmyndin Free Solo sem vann Óskarsverðlaunin árið 2019. Klifrið tók í heildina ekki nema um eina klukkustund og fjörutíu mínútur. Netflix sýndi frá því í beinu streymi með tíu sekúndna frestun en fjölskylda Honnold, kona hans og tvö börn voru á svæðinu og fylgdust með gangi mála. Completamente loco hay que estar para colgar sin utilizar las manos a +500 metros de altura... simplemente, Alex Honnold. #SkycrapperLive pic.twitter.com/6xTdrqJbJv— Baitless (@BaitlessMedia) January 25, 2026 Rétt áður en Honnold komst á toppinn ákvað hann að grínast aðeins og skjóta áhorfendum skelk í bringu með því að setja hendur fyrir aftan bak. Hann hlóð svo í sjálfu þegar á toppinn var komið. ALEX HONNOLD AFTER COMPLETING HIS FREE SOLO OF TAIPEI 101: "Sick."The 101 story climb took 1 hour and 35 minutes #SkyscraperLIVE pic.twitter.com/TIzeRqiUcM— Netflix (@netflix) January 25, 2026
Klifur Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Enski boltinn Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Fleiri fréttir Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Afmælisdagurinn sem aldrei kom Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA Þessir eru tilnefndir sem bestu fótboltamenn heims „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Pablo Escobar útlitið er heitt hjá Betis Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Ruglaðist á mótherja og komst að því í miðju viðtali Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ætlar að taka sér pásu út tímabilið Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Sjá meira