Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Jakob Bjarnar skrifar 24. janúar 2026 15:00 Þorbjörg Sigríður segir að ekki komi fram í umsögn Ólafs að frumvarpið gangi í raun lengra en tillögur hagræðingarhópsins, sem Ólafur vísar til. vísir/Vilhelm/Egill Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda er ekki einn þeirra sem hrópar fyrirvaralaust húrra vegna boðaðs afnáms jafnlaunavottunar. Hann segir afnámið gullhúðað.
Ólafur segir FA Félag atvinnurekenda fagna eindregið frumvarpi Þorbjargar Sigríðar dómsmálaráðherra um að fella skyldu til jafnlaunavottunar úr lögum og taka þess í stað upp einfaldara kerfi. „Félagið telur þó að ráðherrann hefði getað gert betur og gengið lengra,“ segir Ólafur í athyglisverðri grein. Fram hefur komið að hörð gagnrýni á jafnlaunavottunina sem Þorsteinn Víglundsson ráðherra Viðreisnar kom á í sinni tíð. Hann viðurkenndi nýverið í viðtali við Morgunblaðið að mistök hafi verið gerð og vottunin hafi reynst of íþyngjandi fyrir minni fyrirtæki. Kostnaður við jafnlaunavottun hleypur á milljörðum. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ítrekað bent á að lögin séu klámhögg, þau geri ekkert gagn – hún hefur reyndar kallað fyrirbærið „láglaunavottun“. Ólafur segir að þess beri að geta að að úttektir á kynbundum launamun bendi ekki til að jafnlaunavottun hafi nein bein áhrif á hann; „það er ekki marktækt minni launamunur í fyrirtækjum sem hafa fengið jafnlaunavottun en í þeim sem ekki fengu hana.“ Þorbjörg Sigríður segir í stuttu samtali við Vísi að ekki komi fram í umsögn FA að frumvarpið gangi í raun lengra en tillögur hagræðingarhópsins, sem FA vísar til. „Lengra því hin eiginlega jafnlaunavottun er afnumin. Fjöldi fyrirtækja með fleiri en 100 starfsmenn þótti of lítill á Íslandi til að sjónarmiðin um launajafnrétti stæðu ef farið yrði í 100 manna fyrirtæki og stærri eingöngu,“ segir Þorbjörg.
Jafnréttismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Félagasamtök Viðreisn Tengdar fréttir Afnám jafnlaunavottunar Í dag mæli ég fyrir frumvarpi sem gerir ráð fyrir því að jafnlaunavottun verði lögð niður í núverandi mynd án þess þó að hvikað verði frá markmiðum um að sporna gegn launamismunun á grundvelli kyns. Það kerfi sem kemur í staðinn verður reglubundin skýrslugjöf um kynbundinn launamun. 15. janúar 2026 08:00 Jafnlaunavottunin verður lögð af á þessu ári Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi hvernig gengi að afleggja hina umdeildu jafnlaunavottun. Þorbjörg Sigríður sagði að það yrði á þessu ári. 14. janúar 2026 15:55 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira
Afnám jafnlaunavottunar Í dag mæli ég fyrir frumvarpi sem gerir ráð fyrir því að jafnlaunavottun verði lögð niður í núverandi mynd án þess þó að hvikað verði frá markmiðum um að sporna gegn launamismunun á grundvelli kyns. Það kerfi sem kemur í staðinn verður reglubundin skýrslugjöf um kynbundinn launamun. 15. janúar 2026 08:00
Jafnlaunavottunin verður lögð af á þessu ári Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi hvernig gengi að afleggja hina umdeildu jafnlaunavottun. Þorbjörg Sigríður sagði að það yrði á þessu ári. 14. janúar 2026 15:55