Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Sunna Sæmundsdóttir skrifar 24. janúar 2026 14:34 Jenný Kristín Valberg er teymisstjóri hjá Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Mikil fjölgun varð í hópi eldri borgara sem leituðu sér aðstoðar. Ofbeldið er oft falið þar sem fólk getur verið einangrað og upp á ofbeldismann sinn komið. vísir/samsett Tvöfalt fleiri eldri borgarar leituðu til Bjarkarhlíðar vegna ofbeldis í fyrra en árið áður. Algengast er að uppkomin börn beiti foreldra sína ofbeldi og teymisstýra segir fólk gjarnan óttast að kæra. Í Bjarkarhlíð sé þó hægt að gera aðrar ráðstafanir til að tryggja öryggi fólks.
Árið 2024 leituðu ellefu einstaklingar yfir 71 árs aldri sér hjálpar í Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Um er að ræða elsta aldurshópinn í Bjarkarhlíð og í fyrra varð áður óþekkt fjölgun í hópnum milli ára. Tvöfalt fleiri, eða tuttugu og tveir, leituðu sér aðstoðar. „Þessir einstaklingar hafa flestir verið að leita til okkar vegna ofbeldis í nánum samböndum og það er þá ofbeldi milli skyldra og tengdra. Þetta geta verið makar, uppkomin börn og í einstaka tilvikum umönnunaraðilar,“ segir Jenný Kristín Valberg, teymisstjóri í Bjarkarhlíð. Lyf tekin af fólki Algengast sé að börn beiti foreldra sína ofbeldi. „Þetta er mikið andlegt ofbeldi, mikið fjárhagslegt ofbeldi og það eru líka mörg dæmi þess að þetta sé líkamlegt ofbeldi. Þá er líka oft óttinn við að það gæti farið út í það, þessi yfirvofandi ógn um að þetta vonda ástand gæti orðið verra,“ segir Jenný. „Þetta getur líka falist í því að það er verið að taka af þessum hópi lyf. Það er verið að vanrækja þarfir þeirra; að þau kannski geti sinnt sér á þann hátt sem þau vilja eða komist í þá þjónustu sem að þau telja sig þurfa að fara í.“ Hún telur að fjölgun í hópnum megi líklega rekja til aukinnar umræðu. Margir, og þá bæði umönnunaraðilar og fólkið sjálft, hafi opnað augun eftir Súlunesmálið þar sem Margrét Halla Hansdóttir Löf varð föður sínum að bana. Jenný segir rannsóknir sýna að minnihluti mála er varða ofbeldi gegn öldruðum rati á yfirborðið, eða um eitt af hverjum sex. Fólkið sé oft einangrað og upp á ofbeldismann sinn komið. Þau óttast að kæra og gera aðstæður enn óbærilegri. Símanúmer sett í forgang Hún bendir á að fulltrúi frá lögreglunni sé til staðar í Bjarkarhlíð og að þar sé hægt að gerða ráðstafanir til að tryggja öryggi fólks, án vitundar ofbeldismannsins. Atvikin séu færð til bókar og símanúmer viðkomandi sett í forgang. „Þannig að ef að viðkomandi hringir í hérna neyðarlínuna stoppar hann ekki á neyðarvarði, heldur færist símtalið strax inn á fjarskiptamiðstöð lögreglunnar. Þar eru þessar bókanir sýnilegar og tengdar við númerið. Þolandi þarf því ekki að útskýra mál sitt í löngu máli. Lögreglan sér hvaða bókanir hafa verið gerðar og getur þá brugðist við í samræmi við það. Og þetta er auðvitað gríðarlega mikilvægt öryggisatriði,“ segir Jenný og bætir við að það sé aldrei of seint að leita sér hjálpar. Í mörgum tilvikum eru það umönnunaraðilar eða aðrir ættingjar sem stíga inn í málin og benda fólki í elsta aldurshópnum á að leita til Bjarkarhlíðarvísir/Arnar Hún segir mikilvægt að samfélagið sé meðvitað um þennan málaflokk. „Það þarf oft að gefa sér lengri tíma til að rýna þessi mál. Það er algengt að skrifa breytingar á hegðun á veikindi eða það að fólk sé bara að eldast. Þannig ég held að það sé mikilvægt að staldra aðeins lengur við þegar verið er að þjónusta þennan hóp og kanna hvað sé raunverulega að gerast.“
Eldri borgarar Lögreglumál Heimilisofbeldi Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Sjá meira