KR í samstarf við akademíu í Gana Sindri Sverrisson skrifar 15. janúar 2026 15:49 Frá vinstri: Joseph Assinyo, stofnandi akademíunnar, Guðmundur Óskar Pálsson fulltrúi KR og Abdullah Adam, framkvæmdarstjóri og eigandi akademíunnar. KR Tveir knattspyrnumenn eru væntanlegir til KR á næstu dögum úr Field Masters Academy, knattspyrnuakademíu í Accra í Gana. Koma þeirra er hluti af nýju samstarfi KR við akademíuna.
KR-ingar greindu frá samstarfinu á miðlum sínum í dag. Þar segir að markmiðið með því sé að styðja við menntun og knattspyrnuiðkun ungra leikmanna en um leið að skapa þeim tækifæri til að stíga sín fyrstu skref í Evrópu og elta atvinnumannsdrauminn. Field Masters Academy hefur getið af sér leikmenn sem síðar hafa leikið á Englandi, í Danmörku, á Spáni og í Portúgal, að því er segir í tilkynningu KR-inga. Þjálfarar akademíunnar og KR munu eiga í virku samstarfi sem felst meðal annars í því að KR mun fá þjálfara í heimsókn. „Við hjá KR hökkum mikið til samstarfsins við Field Masters Academy,“ segir Magnús Orri Schram, formaður knattspyrnudeildar KR. „Við á Íslandi erum framarlega á mörgum sviðum knattspyrnunnar og með þessu samstarfi getum við miðlað reynslu okkar áfram. Um leið opnum við tækifæri fyrir leikmenn frá Gana til að koma til Íslands og taka þátt í æfingum og keppni. Á næstu dögum munu fyrstu tveir leikmennirnir koma til KR og það er mikilvægt að við tökum vel á móti þeim og styðjum þá í að taka fyrstu skrefin í nýju landi,“ segir Magnús.
KR Gana Fótbolti Mest lesið „Var líklegur í að hoppa í ána og segja að þetta sé búið“ Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Sjá meira