Ólympíuhetja dó í snjóflóði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2026 15:47 Ueli Kestenholz er hér lengst til hægri á verðlaunapallinum á Vetrarólympíuleikunum í Naganó 1998. Getty/Mark Sandten Svissneska ólympíuhetjan Ueli Kestenholz lést í snjóflóði en svissneska skíðasambandið greindi frá því.
Kestenholz var fimmtugur en hann vann brons á snjóbretti á Ólympíuleikunum í Nagano árið 1998. Slysið varð í kantónunni Valais, að því er Blick greinir frá. Ueli Kestenholz ist tot: Der Olympia-Medaillengewinner von 1998 ist im Alter von 50 Jahren bei einem Lawinenunglück ums Leben gekommen. https://t.co/JEwiWjCHLh— Blick Sport (@Blick_Sport) January 13, 2026 Lögreglan í kantónunni hafði áður greint frá því að snjóbrettamaður hefði lent í snjóflóði á sunnudag, grafist undir snjónum og verið fluttur með þyrlu á sjúkrahúsið í Sion. „Við vottum aðstandendum og nánustu Uelis okkar dýpstu samúð,“ segir Peter Barandun, forseti svissneska skíðasambandsins, í yfirlýsingu. Kestenholz var á snjóbretti með vini sínum sem var á skíðum á sunnudag í Lötschen-dal. Snjóflóðið hófst í 2.400 metra hæð af óþekktum ástæðum, að því er lögreglan í Valais greindi frá í yfirlýsingu. Kestenholz festist í snjónum og vinur hans kom honum til hjálpar áður en hann var fluttur með þyrlu á sjúkrahús, fyrst til Visp og síðan til Sion sem er nálægt Crans-Montana. Der bekannte Thuner Snowboarder und Extremsportler Ueli Kestenholz ist am Sonntag bei einem Lawinenunglück im Wallis ums Leben gekommen. https://t.co/QzQozVThai pic.twitter.com/TohL0kks3t— Tages-Anzeiger (@tagesanzeiger) January 13, 2026 Kestenholz varð eins og áður sagði í þriðja sæti í stórsvigi á snjóbretti á Ólympíuleikunum í Nagano árið 1998. Það var í fyrsta sinn sem keppt var í greininni og hún varð að fréttaefni leikanna þegar kanadíski gullverðlaunahafinn Ross Rebagliati barðist fyrir því að halda titli sínum eftir að hafa fallið á lyfjaprófi eftir að kannabis fannst í sýni hans. Kestenholz hafði einnig unnið silfur og brons á heimsmeistaramótum en hann tók þátt í tveimur Vetrarólympíuleikum til viðbótar, varð tvívegis meistari í snjóbrettakrossi á X-Games og hélt áfram atvinnumannaferli sínum í jaðaríþróttum.
Snjóbrettaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Verstappen skrifaði undir nýjan samning Áfram ofsótt og eltihrellirinn ákærður að nýju Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Sjá meira