Hugleiðing um hernað Ámundi Loftsson skrifar 11. janúar 2026 16:34 Um miðja síðustu öld fór ljóðskáldið hugsuðurinn og Steinn Steinarr í heimsókn til Sovétríkjanna. Þessi heimsókn hans var á sínum tíma talsvert umtöluð þar sem hún olli sinnaskiptum í afstöðu sinni til stjórnarfars þessa heimshluta. Hann var ekki hrifinn. Í viðtali við hann í Alþýðublaðinu 1956 lýsi hann þessari breyttu afstöðu sinni og var þá m.a. spurður hvort hann telji Rússa vera friðelskandi þjóð. Þá svaraði hann svona. - „Rússar hafa fundið upp friðinn, hvorki meira né minna, og má það telja nokkuð laglega gert. Þar með er ekki loku fyrir það skotið, að þeir hyggi á landvinninga og jafnvel heimsyfirráð í vissum skilningi.“ – Og síðan segir Steinn.. -„Þeim er sem sé ljóst, að friðsamleg vinna getur gert þá ríka og volduga langt út fyrir öll staðbundin landamæri.“ Og síðar ... -„Og þeim er ljóst að heimurinn verður ekki unninn með vopnum, heimurinn verður einungis unninn með snilldarlegum áróðri og takmarkalausum auðæfum. Þetta vita þeir sem nú stjórna Sovjet-Rússlandi og þess vegna kjósa þeir friðinn framar öllu öðru. Hann er þeirra sterkasta vopn.“ Hvort sem þessi sýn Steins hefur verið rétt og hugsanlega ráðið einhverju um það hvernig ásýnd veraldarinnar varð svo eftir Höfðafundinn fræga á níunda áratugnum þá eiga þau fullt erindi við samtímann. Þau eru í raun sígild. Hvar sjást þess merki að hernaðarátök hafi skilað ávinningi og gert heiminn öruggari og betri? Hvar sjáum við annan árangur hernaðar en kvöl og dauða, eyðileggingu, hrun samfélaga? Minnumst því orða skáldsins, „að heimurinn verður ekki unninn með vopnum.“ Hinsvegar er vandalítið að tortíma honum með hernaði. Þess vegna verða þjóðir heimsins nú að láta af meðvirkni með hernaðarhyggjunni og standa af sér ákall hennar um þátttöku í tilgangslausu hernaðarbrjálæði í heiminum. Höldum þess í stað þeirri knýjandi nauðsyn stöðugt uppi að það er eitt megin hlutverk alþjóðastjórnmála er að vinna að bættum samskiptum þjóða og að það verður ekki gert með hernaði. Höfundur er fyrrum sjómaður og bóndi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Um miðja síðustu öld fór ljóðskáldið hugsuðurinn og Steinn Steinarr í heimsókn til Sovétríkjanna. Þessi heimsókn hans var á sínum tíma talsvert umtöluð þar sem hún olli sinnaskiptum í afstöðu sinni til stjórnarfars þessa heimshluta. Hann var ekki hrifinn. Í viðtali við hann í Alþýðublaðinu 1956 lýsi hann þessari breyttu afstöðu sinni og var þá m.a. spurður hvort hann telji Rússa vera friðelskandi þjóð. Þá svaraði hann svona. - „Rússar hafa fundið upp friðinn, hvorki meira né minna, og má það telja nokkuð laglega gert. Þar með er ekki loku fyrir það skotið, að þeir hyggi á landvinninga og jafnvel heimsyfirráð í vissum skilningi.“ – Og síðan segir Steinn.. -„Þeim er sem sé ljóst, að friðsamleg vinna getur gert þá ríka og volduga langt út fyrir öll staðbundin landamæri.“ Og síðar ... -„Og þeim er ljóst að heimurinn verður ekki unninn með vopnum, heimurinn verður einungis unninn með snilldarlegum áróðri og takmarkalausum auðæfum. Þetta vita þeir sem nú stjórna Sovjet-Rússlandi og þess vegna kjósa þeir friðinn framar öllu öðru. Hann er þeirra sterkasta vopn.“ Hvort sem þessi sýn Steins hefur verið rétt og hugsanlega ráðið einhverju um það hvernig ásýnd veraldarinnar varð svo eftir Höfðafundinn fræga á níunda áratugnum þá eiga þau fullt erindi við samtímann. Þau eru í raun sígild. Hvar sjást þess merki að hernaðarátök hafi skilað ávinningi og gert heiminn öruggari og betri? Hvar sjáum við annan árangur hernaðar en kvöl og dauða, eyðileggingu, hrun samfélaga? Minnumst því orða skáldsins, „að heimurinn verður ekki unninn með vopnum.“ Hinsvegar er vandalítið að tortíma honum með hernaði. Þess vegna verða þjóðir heimsins nú að láta af meðvirkni með hernaðarhyggjunni og standa af sér ákall hennar um þátttöku í tilgangslausu hernaðarbrjálæði í heiminum. Höldum þess í stað þeirri knýjandi nauðsyn stöðugt uppi að það er eitt megin hlutverk alþjóðastjórnmála er að vinna að bættum samskiptum þjóða og að það verður ekki gert með hernaði. Höfundur er fyrrum sjómaður og bóndi.
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar